Fréttir
Imbran í fullum gangi - myndir
	<description>Imbran er komin á fullt og skólinn iðar af lífi. Hér má t.d. sjá nema sem kynntu sér sirkus. Úti um allan skólann voru allskonar atburðir í gangi og var fjölbreytileikinn mjög mikill. Á morgun (fimmtudag 23.2) verður svo söngleikurinn Paradise City frumsýndur kl. 12.00 Hér að neðan eru nokkrar myndir frá Imbrunni.</description>
Tískusýning á göngunum
	<description>Imbran hefst á morgun, en að sjálfsögðu var tekið forskot á sæluna í dag, með tískusýningu, sem haldin var á göngum skólans. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru við það tækifæri. Á morgun, miðvikudag, hefst svo Imbran af fullumn krafti.</description>
Imbran brestur á!
	<description>Hin árlega IMBRU-hátíð Fjölbrautaskóla Garðabæjar hefst miðvikudaginn 22.febrúar og stendur í tvo daga. Það verður ekki hefðbundin kennsla þá, en fjölmargt annað spennandi í gangi og dagskráin glæsileg. Þemað er árin 1920-1940. Dagskrá kemur í kynningu í dag (mánudag), þá verður opnað fyrir skráningu.</description>
María Heba vann Eddu-verðlaunin!
	<description>Leiklistarkennari FG, María Heba Þorkelsdóttir, vann Eddu-verðlaunin fyrir leik sinn í kvikmyndinni Okkar eigin Osló, en þau voru afhent við athöfn þann 18.febrúar síðastliðinn. Verðlaunin voru í flokknum ,,Besta leikkona í aukahlutverki." FG óskar Maríu að sjálfsögðu til hamingju með verðlaunin!</description>
Tara og Ísak  í sviðsljósinu
	<description>Skemmtilegar fréttir sem snerta FG, voru í fjölmiðlum þann15 febrúar síðastliðinn. Um er að ræða þau Töru Þöll Imsland, söngkonu og Ísak Óla, myndlistarmann. Tara er nemandi á Starfsbraut FG, en Ísak er útskrifaður þaðan.Tara mun verða fulltrúi Íslands í söngvakeppninni Eurosong á Írlandi, en keppnin verður í júní.</description>
Nemendur hittu forsetann!
	<description>Spænsku nemendurnir, sem hafa verið í heimsókn í FG síðustu daga, hittu forseta Íslands, dr.Ólaf Ragnar Grímsson í móttöku á Bessastöðum í dag. Með í för var íslenski nemendahópurinn og kennarar. Ólafur ræddi mikilvægi umhverfismála í víðu samhengi, en hann er nýkominn úr ferð til Suðurskautslandsins.</description>
Hildur Eva Ásmundardóttir vann söngkeppnina
	<description>Hildur Eva Ásmundardóttir vann söngkeppni NFFG, sem haldin var föstudaginn 10.febrúar. Hún söng lagið Angel, en höfundur þess er Sarah McLachlan. Í öðru sæti varð Camilla Rut Arnarsdóttir með lagið Feeling Good og í þriðja sæt varð Urður Gunnarsdóttir, en hún söng Án þín, eftir hina goðsagnakenndu sveit, Trúbrot.</description>
Leiklistarnemar í FG í "draugagangi"
	<description>Svokölluð "Safnanótt" er haldin hátíðleg um þessar mundir á höfuðborgarsvæðinu og að sjálfsögðu er Garðarbær með. Á safnanótt eru bókasöfn landsins opin til miðnættis Meðal atriða á dagskránni í Garðabæ er atriði sem snýst um drauga og draugasögur. Í því atriði koma leiklistarnemar úr FG við sögu.</description>
Spænskir nemar í heimsókn
	<description>Um 30 menntaskólanemar eru nú í heimsókn í FG, en þau eru frá skólanum IES Gran Tarajal á eyjunni Fuerteventura á Spáni. Hún er ein af Kanaríeyjunum góðkunnu. Í dag kynntu nemarnir sér skólann og starfsemi hans.Heimsókn þeirra lýkur þann 14.febrúar.</description>
Söngkeppni á föstudagskvöld!
	<description>Það er mikið að gera í félagslífinu í FG, á því er enginn vafi. Núna á föstudagskvöldið, 10.febrúar, fer fram Söngkeppni FG. Þar hefur hæfileikaríkt söngfólk (og af því er nóg í FG) tækifæri til þess að láta ljós sitt skína og þenja raddböndin af mikilli list.</description>
Söngleikurinn Paradise City nálgast óðum!
	<description>Nú styttist í að söngleikurinn "Paradise City" verði frumsýndur, en það gerist í Imbru-vikunni, nú í febrúar. Æfingar eru á fullu og sviðsmyndin er að taka á sig mynd. Eftirvæntingin er mikil enda er leikritið einn helsti hápunktur skólaársins.</description>
María Heba tilnefnd til Eddu-verðlaunanna
	<description>María Heba Þorkelsdóttir, leiklistarkennari FG, hefur verið tilnefnd til Eddu-verðlaunanna fyrir frábæran leik sinn í kvikmyndinni Okkar eigin Osló. Eddu-verðlaunin eru einskonar "Óskars-verðlaun" Íslands. FG óskar Maríu hjartanlega til hamingju með þetta! Í myndinni leikur María systur aðalpersónunnar, sem leikin er af Þorsteini Guðmundssyni.</description>
Listnámsnemar á faraldsfæti
	<description>Vorönnin byrjaði með ýmsum vettvangsferðum hjá listnámsnemum.  Áfanginn MHL113 í myndbandagerð fór í heimsókn til RÚV og skoðaði allt mögulegt sem viðkemur upptökum. Lokaáfanginn á myndlistarbraut fór í Gallerí I8 og skoðaði sýningu Ragnars Kjartanssonar og fengu nemendur áhugaverða fræðslu um gallerírekstur.</description>
Baltasar Kormákur í vel lukkaðri FG-heimsókn
	<description>Það er gaman frá því að segja að frægasti kvikmyndaleikstjóri Íslands um þessr mundir, Baltasar Kormákur, kom í heimsókn til FG í dag og ræddi m.a. kvikmyndagerð við fjölmiðlafræðinema. Kvikmynd hand hans Contraband hefur slegið í gegn, en þar er að finna stjörnur á borð við Mark Wahlberg og Kate Beckinsale.</description>
Keilumót í kvöld í Keiluhöllinni
	<description>Nemendafélag NFFG stendur fyrir keilumóti í Keiluhöllinni í kvöld kl.20.30. Sex eru saman í liði og er þátttökugjald kr. 1000, sem greiðast skal á skrifstofu NFFG. 
Keila er vinsæl íþrótt og gerðar hafa verið frábærar kvikmyndir um þetta, t.d. Kingpin og The Big Lebowski, þar sem allar aðalpersónurnar eru miklir áhugamenn um keilu.</description>
FG mætir MR í 8-liða úrslitum Gettu betur!
	<description>Dregið var í átta-liða úrslitum í Gettu betur þann 30. janúar. FG dróst á móti MR og verður viðureignin í sjónvarpssal þann 2.mars. FS mætir Versló, MH mætir Borgarholtsskóla og MA mætir Kvennaskólanum.
Þá er bara að bretta upp ermar, FG!</description>
Nemendur frá Fuerteventura væntanlegir!
	<description>Kanaríeyjabúinn Carlos Herrera, kennari við IES Gran Tarajal á eyjunni Fuerteventura, heimsótti FG fyrir skemmstu og nutu nokkrir spænskunemendur góðs af. Heimsóknin var liður í undirbúningi sérstöku umhverfisverkefni, sem verður unnið í febrúar af nemendum beggja skóla.</description>
FG-nemar í tískuumfjöllun Monitor
	<description>Ef það er eitthvað sem nemendur í framhaldsskóla hafa mikinn áhuga (fyrir utan námið!), þá er það tíska! Í nýjasta hefti unglingablaðs Morgunblaðsins, Monitor, er að finna fjóra nemendur úr FG í umfjöllun um tísku unga fólksins. Lesið meira hér, bls 6!</description>
FG skellti MÍ
	<description>Lið Menntaskólans á Ísafirði hafði ekki erindi sem erfiði, eftir að hafa brölt suður í ófærðinni, til að keppa við FG í Gettu betur í kvöld. Lið FG rúllaði hreinlega yfir MÍ og lokatölur urðu 23 gegn 8 fyrir FG! Flott frammistaða, FG-ingar!</description>
FG er: Heilsueflandi framhaldsskóli! Verðlaunakeppni!
	<description>Verkefninu ,,Heilsueflandi framhaldsskóli,“ var formlega hleypt af stokkunum í dag á hátíðarsal FG. Hluti af verkefninu er að hvetja nemendur, aðstandendur og starfsmenn skólans til að leggja sitt af mörkum, í formi uppskrifta. Að hverju? Jú, uppskriftum að heilsuréttum og drykkjum, sem kosta lítið. Mat, drykk og hvaðeina!</description>