Fréttir
Leiðin þín: Forsíða >> Fréttir
Fréttir
26. apríl 2010 12:53

Tískusýning í Urðarbrunni í FG kl. 20 á miðvikudaginn.

 

 

Tískusýningin verður haldin miðvikudaginn 28. apríl kl 20. 00 í hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ.  Tólf nemendur sýna útskriftarverkefni sín en þeir hafa hannað fatalínur með allt frá 6 til 10 flíkum eða þremur til fjórum innkomum.

Nemendur hafa unnið að þessum verkefnum núna á vorönn. Þema sýningarinnar er Framtíðarlandið og hefur nálgun nemenda verið með ýmsu móti. Nemendum og kennurum er boðið að koma og njóta þess að sjá verk nemenda og þiggja léttar veitingar að því tilefni.
  

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is
RSS