Fyrirtækið Chronica (www.chronica.is) sem Tryggvi, Gunnar Helgi, Gunnlaugur Freyr, Arnór Kristinn, Davíð Ómar og Matthías stofnuðu hlaut verðlaun sem Besta fyrirtækið í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla fyrir þróun á tímaskráningarkerfi fyrir fyrirtæki.
Fyrirtækjasmiðja Ungra Frumkvöðla er fyrir framhaldsskólanema og miðar að þvi að efla skilning nemenda á fjölbreyttum fyrirtækjarekstri. Þátttakendur voru 16 fyrirtæki frá framhaldsskólum landsins.Þessi verðlaun veitir þeim keppnisrétt í keppni Ungra frumkvöðla í Evrópu sem fram fer á Ítalíu síðar í sumar.
Skrifstofa skólans er opin
virka daga frá kl. 08.00 - 15.00svarað er í síma til kl. 16.00
Ath. skilafrestur í uppskriftasamkeppni er
15. febrúar n.k.