Stór hópur FG-inga kvaddi skólann sinn í morgun. Hópurinn byrjaði daginn með morgunkaffi á kennarastofunni en síðan var farið í búningsherbergi hátíðarsalarins þar sem nemendur klæddu sig í risaeðlubúninga. Að því loknu var marserað inn í skólann og sungin nokkur lög í stiganum í anddyri skólans.
Þá var farið í Urðarbrunn, hátíðarsal skólans, þar sem skipulögð dagskrá hófst með söng. Tvö lið kennara kepptu í stuttri útgáfu af Útsvari. Myndlistarkennararnir, Sigríður Sigurðardóttir og Sari Cedergren kepptu um hvor teiknaði betri mynd af Þorsteini, skólameistara. Jafntefli varð í þeirri keppni. Þá afhentu dimittendar 80 þúsund króna gjöf til Safamýrarskóla til styrktar kennslu fatlaðra barna. Skólastjóri, aðstoðarskólastjóri og fulltrúi nemenda Safamýrarskólans tóku við gjöfinni og þökkuðu vel fyrir. Þá afhentu dimittendar öllum starfsmönnum skólans rósir og þökkuðu fyrir góða samveru. Dagskránni lauk síðan með kröftugi danslagi þar sem dimittendar sungu af krafti undir ógleymanlegri forystu Svavars Braga Jónssonar sem dansaði og söng þýskan texta djúpri röddu. Þá buðu dimittendar starfsmönnum í morgunkaffi í mötuneyti nemenda.Að mati viðstaddra var athöfn þessi afar skemmtileg og öllum til mikils sóma.
Skrifstofa skólans er opin
virka daga frá kl. 08.00 - 15.00svarað er í síma til kl. 16.00
nema á föstudögum
Hér er hægt að nálgast
verðlauna uppskriftir á pdf formati