Fjölbrautaskólanum í Garðabæ var slitið í 26. sinn laugardaginn 22.maí. Brautskráðir voru 97 stúdentar. Dux skólans er Rebekka Kristín Morrison stúdent af listnámsbraut. Gospelkór Jóns Vídalíns söng tvö lög í byrjun.
Síðan tók Þorsteinn Þorsteinsson skólameistari til máls. Hann flutti stutt yfirlit yfir vetrarstarfið og minntist meðal annars á að stefna skólans er að hafa fjölbreytta þjónustu fyrir breiðan hóp nemenda. Þorsteinn þakkaði nemendum fyrir dimission, sem fór sérstaklega vel fram. Ingibjörg Lind Karlsdóttir, formaður skólanefndar og Gunnar Einarsson bæjarstjóri fluttu stutt ávörp. Ásmundur Þórðarson talaði fyrir hönd 25 ára stúdenta. Ávarp nýstúdenta flutti Sara Rut Unnarsdóttir sem þakkaði veruna í skólanum og mælti hlýleg orð til starfsmanna skólans. Að lokum kallaði Þorsteinn Stefán Árnason kennara upp á svið og veitti honum gullmerki skólans en Stefán er að láta af störfum. Þorsteinn sleit síðan skólanum í síðasta sinn en hann lætur af störfum og nýr skólameistari, Kristinn Þorsteinsson, tekur við 1. ágúst næstkomandi. Að venju lauk athöfninni með því að viðstaddir risu úr sætum og sungu Íslands minni.
Skrifstofa skólans er opin
virka daga frá kl. 08.00 - 15.00svarað er í síma til kl. 16.00
nema á föstudögum
Hér er hægt að nálgast
verðlauna uppskriftir á pdf formati