Fimm hressir strákar úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ sigruðu Fyrirtækjasmiðjuna sem besta fyrirtækið 2010, fyrir að þróa tímaskráningarkerfi fyrir fyrirtæki. Með sigrinum unnu þeir sér þátttökurétt í Evrópukeppni ungra frumkvöðla á Sardiníu á Ítalíu 19.- 24. júlí 2010. Þar voru þátttakendur frá 32 Evrópulöndum.
Eftir mikinn undirbúning í allt sumar hélt hópurinn af stað ásamt kennara á vit ævintýranna á Ítalíu…og ævintýri var það en jafnframt frábær reynsla. Þegar komið var á áfangastað kom í ljós að töskurnar með öllum gögnum, kynningarefni, tölvum og fyrirlestrum höfðu orðið eftir í Frakklandi. Þrátt fyrir mótbyr létu strákarnir ekki bugast og stóðu sig eins og hetjur.
Skrifstofa skólans er opin
virka daga frá kl. 08.00 - 15.00svarað er í síma til kl. 16.00
Ath. skilafrestur í uppskriftasamkeppni er
15. febrúar n.k.