Föstudaginn 3. september gerðu nemendur og starfsmenn stutt hlé á hefðbundnu starfi sínu og fóru út til að hreinsa lóð skólans. Allt rusl var sett í poka og stéttir sópaðar. Það blés hressilega enda komu menn rjóðir í kinnum aftur inn með pokana misúttroðna.
Gleðin fólst í þeirri staðreynd að öll berum við ábyrgð á því að ganga vel um og henda ekki rusli á víðavangi. Við erum stolt af því að starfa í skóla þar sem umhverfið, jafnt innan dyra sem utan, er í hávegum haft.
Skrifstofa skólans er opin
virka daga frá kl. 08.00 - 15.00svarað er í síma til kl. 16.00
Ath. skilafrestur í uppskriftasamkeppni er
15. febrúar n.k.