Lið Menntaskólans á Ísafirði hafði ekki erindi sem erfiði, eftir að hafa brölt suður í ófærðinni, til að keppa við FG í Gettu betur í kvöld. Lið FG rúllaði hreinlega yfir MÍ og lokatölur urðu 23 gegn 8 fyrir FG! Flott frammistaða, FG-ingar!
Þetta þýðir að lið FG er komið í átta liða úrslit og þar með sjónvarpskeppnina. Þann 30.janúar verða síðustu viðureignirnar í 16 liða úrslitum og eftir það ræðst hverjum FG mætir í sjónvarpinu.
Skrifstofa skólans er opin
virka daga frá kl. 08.00 - 15.00svarað er í síma til kl. 16.00
nema á föstudögum
Hér er hægt að nálgast
verðlauna uppskriftir á pdf formati