23. mars 2012 11:20
Vintage Caravan vann hljómsveitakeppni

Rokksveitin Vintage Carvan vann hljómsveitarkeppnina Global Battle of the Bands þann 17.mars og vann þannig þátttökurétt í lokaúrslitunum sem verða haldin í Rúmeníu í júní. Frá þessu var greint í frétt í Fréttablaðinu, en tveir að þremur liðsmanna sveitarinnar eru í FG.
Það eru , þeir Óskar Logi Ágústsson (gítar) og Guðjón Reynisson, trommuleikari.
Segja má að sveitin sé á kafi í því sem kalla mætti "sjöunda-áratugsrokk" (Jimi Hendrix, Led Zeppelin o.fl.) en í samtali við FRBL sagði Óskar Logi um keppnina: "Þetta gekk framar vonum því við bjuggumst ekkert við því að vinna þetta. Það verður mikill stökkpallur fyrir okkur að fara út," segir Óskar Logi. "Við ætluðum að reyna að fara eitthvað út í sumar en vorum eiginlega búnir að gefast upp á því. Við ætluðum að gera þetta vel árið 2013 en síðan rættist sá draumur að fara til útlanda í fyrsta sinn að spila."
Sveitin er að sjálfsögðu á Fésbókinni og þar er ýmisleg góðgæti, t.d. má sjá sveitina spila íslenska þjóðsönginn!