23. apríl 2012 15:39
Listanemar sýna í Borgarbókasafninu (við höfnina)

Þriðjudaginn 24. apríl klukkan 17:00-19:00 opnar sýning á verkum nemenda á myndlistarbraut FG. Sýningin er á 1. hæð í aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Sýninginn verður opin til 2. maí. Opnunartími er mánudaga - fimmtudaga 10-19, föstudaga 11-18, laugardaga og sunnudaga 13-17.
Sýningin er afrakstur 16 nemenda í lokaáfanga í myndlist. Viðfangsefni þeirra eru ólík og hefur hver og einn þróað eigin aðferðir og efnistök.
Allir velkomnir, aðgangur er ókeypis og næg bílastæði!
Nemendur sem eiga verk á sýningunni:
Anna Diljá Sigurðardóttir
Assa Þorvarðardóttir
Auður Andrea Skúladóttir
Álfheiður Gló Einarsdóttir
Bryndís Inga Pálsdóttir
Brynjar Darri Baldursson
Davíð Örn Júlíusson
Elfa Ýr Þórisdóttir Guðbjörg Pálsdóttir
Guðjón Ragnarsson
Gunndís Ásta Gísladóttir
Hafrún Kolbeinsdóttir
Hreinn Logi Steinþórsson
Katrín Hauksdóttir
Snæbjörn Þór Árnason
Unnur María Harðardóttir