24. apríl 2012 19:36
Nemar á Njáluslóðum

Þann 23.apríl fóru nemendur í ísl 303 í Njáluferð. Fyrsti viðkomustaður var Sögusafnið á Hvolsvelli en þar tók Sigurður Hróarsson forstöðumaður á móti okkur og sýndi safnið. Þaðan var keyrt inn Fljótshlíðina að Hlíðarenda, þar sem sást yfir bleika akra. Ekki spillti veðrið fyrir, en sól skein á silfurbláan Eyjafjallatind.
Sigurður hélt fróðlega tölu um Hlíðarenda og Njálu með miklum tilþrifum. Síðan var haldið í Skálholt þar sem Egill Hallgrímsson, sóknarprestur, tók á móti okkur. Hann sagði frá sögu staðarins og nemendur fengu að skoða kistu Páls Jónssonar, biskups, en hann lést í nóvember árið 1211.
Einnig könnuðu nemendur gömul göng sem liggja út frá kjallara kirkjunnar. Nemendur komu svo sælir og uppfullir af fróðleik til baka að FG á slaginu 16:00.