Fréttir
Leiðin þín: Forsíða >> Fréttir
Fréttir
20. október 2009 09:46

25 ára afmæli skólans

 

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ hélt upp á 25 ára afmæli skólans föstudaginn 16. okt sl. Þá var opið hús í skólanum og sérstök hátíðardagskrá kl. 12.00. Þorsteinn Þorsteinsson, skólameistari ávarpaði gesti, nemendur og starfsmenn. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, flutti ræðu og opnaði síðan nýja heimasíðu  

skólans ásamt Arnari Gunnarssyni, forseta NFFG. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, flutti ávarp og færði skólanum gjöf frá bænum, málverk eftir Laufeyju Jensdóttur, bæjarlistamann 2009. Anna Garðarsdóttir lék einleik á fiðlu, Gospelkórinn söng, Valborg Ólafsdóttir söng einsöng og Alexander Jarl Þorsteinsson lék á gítar. Dagskránni lauk með því að boðið var upp á veitingar, afmælistertu o.fl.

 

Myndir frá hátíðinni er hægt að skoða í myndasafni

Skrifstofan verður opin frá
kl. 9.00 – 14.00

til og með 28. júní.

Opnum aftur eftir sumarleyfi
5. ágúst kl. 8.00.

Smellið á myndina til að stækka

Mynd af skólanum
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is