Fréttir
Leiðin þín: Forsíða >> Fréttir
Fréttir
30. október 2009 12:02

HG-hópurinn í Noregi

  

HG hópur árgangur 1992 er nýkominn frá Noregi eftir vel heppnaða heimsókn til vinaskóla í Nötteröy. Skólinn er í nágrenni Tönsberg um 100 kílómetra suðaustur af Osló. Heimsókn þessi er liður í Nordplus Junior samstarfi sem skólinn er þátttakandi í. Ferðin hófst í Osló og var gist þar í eina nótt.

Farið var m.a. í Kontiki safnið, Víkingasafnið og farið var út að borða. Næst var haldið til Nötteröy og gistu nemendur þar hjá norskum fjölskyldum og tóku þátt í nýsköpunarverkefnum undir stjórn norsk kennara og Tinnu Aspar Arnardóttir, viðskiptagreinakennara hér í FG.
Gist var í fjórar nætur og er óhætt að segja að nemendur hafi notið mikillar gestrisni bæði hjá fjölskyldunum og í skólanum. Nemendur lærðu þar að útbúa sér „madpakke“ og gildi almenningssamgangna. Þessi heimsókn er bara fyrsta skrefið í þessu samstarfi og munu norskir nemendur koma í heimsókn á næstu vorönn. FG væntir mikils af frekara samstarfi í framtíðinni. 

Skrifstofan verður opin frá
kl. 9.00 – 14.00

til og með 28. júní.

Opnum aftur eftir sumarleyfi
5. ágúst kl. 8.00.

Smellið á myndina til að stækka

Mynd af skólanum
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is