Fréttir
Leiðin þín: Forsíða >> Fréttir
Fréttir
10. nóvember 2009 11:59

Listnámsbraut í samvinnu við Hönnunarsafn Íslands

 

Á þessari önn hafa nemendur í MYL203 unnið að hluta til í  Hönnunarsafni Íslands. Verkefnið byrjaði á því að vinna rannsóknarvinnu um stóla og stólahönnun hér heima í skólanum. Sú vinna byrjaði með því að vinna með eins og tveggja punkta fjarvídd.

Því næst var farið í Hönnunarsafnið þar sem nemendur fengu fyrirlestra um húsgagnahönnun og þá einkum íslenska hönnun.Þar var nemendum boðið að velja sér stóla sem þeir áttu síðan að rannsaka og skissa upp. Það sem gerði þetta verkefni svo einstaklega skemmtilegt var að okkur gafst síðan kostur á að vinna í Gamla Hagkaupshúsinu á Garðatorgi. Þar er sem stendur svokölluð Efnisveita (Afgangar frá ýmsum fyrirtækjum og annað endurnýtanlegt efni). Nemendur unnu þar litla stóla, svokallaðar prótótípur, sem áætlað er að sýna á Listadögum í Garðabæ eftir áramót. Nemendahópurinn var stór, 28 nemendur, og aðstaðan þarna var svo ótrúlega góð að við kennararnir höfum aldrei orðið vitni að eins mikilli vinnugleði hjá nemendum.
Við viljum þakka Árdísi Olgeirsdóttir sérstaklega fyrir að gefa okkur þetta frábæra tækifæri til samvinnu.
 Fleiri myndir

Skrifstofa skólans er opin

virka daga frá kl. 08.00 - 15.00
svarað er í síma til kl. 16.00

 

 

Ath. skilafrestur í uppskriftasamkeppni er

15. febrúar n.k.

Mynd af skólanum
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is
RSS