2. desember 2009 10:51
Söfnun fyrir Hjálparstarf kirkjunnar

Fulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar í Garðabæ fékk afhentar um 150.000 krónur sem nemendur í lífsleikni í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ hafa safnað undanfarnar vikur. Nemendurnir hafa stundað alls kyns starfsemi til þess að safna fé handa nauðstöddum, allt frá kakó og kleinusölu, til bílaþvotta og klassíkskrar dósasöfnunar.
Nemendurnir, sem allir eru nýnemar vildu með þessu láta sitt af hendi rakna, til þess að hjálpa þeim sem á aðstoð þurfa að halda.
Í stuttu ávarpi hrósaði Margrét Rós Harðardóttir, sem tók við peningunum, lífleikninemunum fyrir framlag sitt og sagði það mjög ánægjulegt að þeir létu sig velferð annarra varða. Að hennar sögn er þörfin á aðstoð mjög mikil um þessar mundir. Því kæmi þetta fé að mjög góðum notum.