Fréttir
Leiðin þín: Forsíða >> Fréttir
Fréttir
19. desember 2009 12:49

Brautskráning 19. desember 2009

 

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ brautskráði nemendur í 51. sinn laugardaginn 19.desember. Brautskráðir voru 43 nemendur  þar af 16 stúdentar af félagsfræðabraut, 7 af náttúrufræðibraut, 7 af listnámsbraut, 4 af viðskipta- og hagfæðibraut, 4 af íþróttabraut, 3 með viðbót við iðnnám og 2 nemendur luku prófi af leikskólabrú.

Þetta eru fyrstu nemendurnir sem ljúka lokaprófi af leikskólabrú. Dux scholae þessa önn er Sæunn Kjartansdóttir stúdent af listnámsbraut.  Gospelkór Jóns Vídalíns söng tvö lög í byrjun en síðan tók Þorsteinn Þorsteinsson skólameistari til máls. Hann flutti stutt yfirlit yfir vetrarstarfið og sagði m.a. frá 25 ára afmæli skólans.  Þorsteinn þakkaði nemendum fyrir dimission og hvatti nemendur til að efla með sér sjálfsvirðingu, vera gagnrýnin í hugsun  og láta verkin tala. Eftir ávarp skólameistara söng Valborg Ólafsdóttir stúdent af listnámsbraut við undirleik Aðalsteins Inga Halldórssonar. Ingibjörg Lind Karlsdóttir, formaður skólanefndar flutti ávarp og talaði um nýstúdentana sem hina nýju von Íslands.
Ávarp nýstúdenta flutti Hildur Steinþórsdóttir  stúdent af viðskipta- og hagfræðibraut sem þakkaði veruna í skólanum og mælti hlýleg orð til starfsmanna skólans.
Að því loknu afhenti skólameistari Valborgu Ólafsdóttur viðurkenningu fyrir frábæran söng á liðnum árum. Athöfninni lauk með því að allir risu úr sætum og sungu Íslands minni.
Að venju bauð skólinn upp á veitingar.  

Skrifstofa skólans er opin

virka daga frá kl. 08.00 - 15.00
svarað er í síma til kl. 16.00

 

 

Ath. skilafrestur í uppskriftasamkeppni er

15. febrúar n.k.

Mynd af skólanum
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is
RSS