Fréttir
Leiðin þín: Forsíða >> Fréttir
Fréttir
7. janúar 2010 10:49

Flottir FG - ingar!

 

Þegar þrjár efstu tillögurnar í forsíðusamkeppni Símaskrárinnar 2010 voru valdar kom í ljós að þær voru allar eftir sömu höfundana, vinkonurnar Önnu Ingólfsdóttur og Elísabetu Brynhildardóttur. Alls bárust um 1.530 tillögur í samkeppnina.

Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin:  700.000 kr. fyrir 1. sæti, 200.000 fyrir 2. og 100.000 fyrir 3. sæti.  Anna og Elísabet hljóta því samtals eina milljón króna í sinn hlut. Anna Ingólfsdóttir var ein af fyrstu nemendum Framhaldsskólans í Garðabæ. Anna er með BA-gráðu í bókmenntum og ritlist frá Vermont College í Bandaríkjunum og jógakennararéttindi frá Kripalu Center í Bandaríkjunum.  Elísabet útskrifaðist af myndlistarbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Nú er hún teiknari með BA-gráðu frá University College for the Creative Arts í Bretlandi og hefur tekið þátt í sýningum í Bretlandi og Belgíu en hélt sína fyrstu einkasýningu síðastliðið vor í Galleríi Sævars Karls. (Tekið af mbl.is)

Skrifstofa skólans er opin

virka daga frá kl. 08.00 - 15.00
svarað er í síma til kl. 16.00

 

 

Ath. skilafrestur í uppskriftasamkeppni er

15. febrúar n.k.

Mynd af skólanum
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is
RSS