HG – hópur í FG
Valkostur fyrir duglega námsmenn
Kostur á þriggja ára stúdentsprófi í stað fjögurra
Hugmyndafræðin að baki HG – hópnum er að nemendur geti hraðað námi sínu og/eða dýpkað það.
Nám metið úr grunnskóla
Nemendur fá metna framhaldsskólaáfanga úr grunnskóla og geta þannig stytt námstímann í FG.
Góð stundatafla
HG – nemendur fá góða stundatöflu með mörgum náms einingum. Þeir geta þannig flýtt náminu verulega. Umsjónarkennari fylgist vel með framvindu námsins hjá nemendum.
Áhugaverðar námsferðir
Skólinn býður HG – nemum upp á sérstakar námsferðir sem eru bæði fræðslu- og skemmtiferðir. HG – hópar hafa ferðast innan lands, t.d. til Akureyrar, og einnig heimsótt skóla og skoðað merka staði í Danmörku, Englandi, Hollandi og Noregi.
Námsárangur
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ býður upp á HG – þjónustu fyrir nemendur sem sýnt hafa góðan námsárangur í grunnskóla.
Inntökuskilyrði
Skilyrði fyrir inngöngu í HG – hópinn eru jafnar og góðar einkunnir í grunnskóla.
Frekari upplýsingar um HG – hópinn má fá hjá eftirfarandi aðilum:
o Anna G. Hugadóttir náms- og starfsráðgjafi annah@fg.is
o Unnur Símonardóttir náms- og starfsráðgjafi unnurs@fg.is
o Elísabet Siemsen áfangastjóri elisabets@fg.is
o Kristinn Þorsteinsson aðstoðarskólameistari kristinn@fg.is