Námið
Innritun á haustönn 2010

 

 

Eftir vandræði sem sköpuðust við innritun nýnema síðasta vor hefur Mennta- og menningarmálaráðuneytið sett reglur um innritun til að reyna að koma í veg fyrir að þessi vandræði endurtaki sig. FG mun í hvívetna halda sig við þessar reglur og hvetur nemendur og forráðamenn til að kynna sér þær vel. Reglurnar munu birtast á heimasíðunni um leið og þær eru tilbúnar til birtingar.

(Slóð á grein Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra „Um forsendur breytinga á innritun nýnema.“)

 

Samkvæmt ákvörðun Mennta- og menningarmálaráðuneytisins eiga nemendur í nágrenni skóla forgang við inngöngu á þær námsbrautir sem þeir standast inntökuskilyrði á. Þetta er engin nýlunda fyrir FG. Hér hafa íbúar Garðabæjar og Álftaness átt vísa skólavist hafi þeir sótt um FG í fyrsta sæti. Svo mun verða áfram.

 

Framhaldsskólum er gert að taka að minnsta kosti 45% nýnema af sínu svæði. Það þýðir að nemendur frá Garðabæ og Álftanesi, sem velja FG í annað sæti, eru ekki öruggir með skólavist í FG þar sem talsverðar líkur eru á að 45% markinu verði náð strax í fyrstu umferð.

 

FG hefur alltaf haft það að markmiði að sinna sem breiðustum hópi nemenda. Námsframboð er fjölbreytt og við flestra hæfi. FG hefur einnig kappkostað að sinna sínu nánasta umhverfi vel. Það þýðir að nemendur frá Garðabæ og Álftanesi sem hingað sækja eiga hér víst skjól. Það þýðir hinsvegar ekki að nemendur frá Garðabæ og Álftanesi geti treyst á skólavist hér ef þeir fá ekki skólavist í öðrum skólum.

 

 

 

Skrifstofan verður opin frá
kl. 9.00 – 14.00

til og með 28. júní.

Opnum aftur eftir sumarleyfi
5. ágúst kl. 8.00.

Smellið á myndina til að stækka

Mynd af skólanum
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is