Ýmsar síður
Tilkynningar
23. janúar 2012 01:36

Opið hús í FG miðvikudaginn 22. febrúar.

 

OPIÐ HÚS í  FG

 

Miðvikudaginn 22. febrúar klukkan 16:00 til 18:00

 

Stjórnendur, námsráðgjafar og kennarar verða til viðtals á staðnum og gefa upplýsingar um nám, námsbrautir, námsframboð, kennslu og aðstöðu til náms.

Nemendur munu kynna nemenda- og leikfélagið.           

Námsframboð í FG

·        Viðskipta – og hagfræðibraut

·        Alþjóðabraut

·        Félags- og hugvísindabraut

·        Náttúrufræðibraut

·        Listabraut (myndlist, leiklist, textíl- og fatahönnun)

·        Íþróttabraut

·        Hönnunar- og markaðsbraut

meira...
17. janúar 2012 08:36

Stoðtímar í stærðfræði!

 

Stoðtímar í stærðfræði verða á fimmtudögum frá kl. 16:20 – 17:20.

 Tímarnir fara fram í stofu V-217 og byrja  fimmtudaginn 19. janúar.

 

Stærðfræðikennarar

 

 

 

meira...
16. janúar 2012 09:43

Fjarnám hefst þann 19. janúar

 

Fjarnámið byrjar 19. janúar. Nemendur fá í pósti á lögheimili bréf með lykilorði að kennslukerfi skólans, svo og greiðsluseðil sem greiða þarf fyrir eindaga. Hafið samband við kennslustjóra fjarnáms ef bréf hefur ekki borist fyrir 19. janúar.

Gangi ykkur vel.

Svavar

 

meira...
10. janúar 2012 04:07

Jöfnunarstyrkur


Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu?

Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is
Hægt er að skrá umsókn á Innu eða netbankanum!

Umsóknarfrestur vegna vorannar 2012 er til 15. febrúar næstkomandi!

Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd 

 

meira...
28. desember 2011 01:05

Upphaf vorannar 2012

Kennsla hefst samkvæmt stundarskrá fimmtudaginn 5. janúar. Opnað verður fyrir INNU miðvikudaginn 4. janúar klukkan 9:00 og geta nemendur nálgast töflur sínar þar.

Nýir nemendur geta nálgast töflur sínar og aðgang að INNU og tölvukerfi á skrifstofu skólans 4. janúar frá klukkan 9:00.  

Töflubreytingar verða 4. janúar frá 13:00 – 16:30 og 5. janúar frá klukkan 9:00 – 16:00.

 

 

meira...
13. desember 2011 03:09

Innritun í fjarnám vorönn 2012

 

 

Innritun í fjarnám á vorönn 2012 er hafin.

Umsóknareyðublað, verðskrá  og nánari upplýsingar er að finna undir fjarnám.

 

 

 

 

meira...
24. nóvember 2011 02:12

Nýtt kvöldnám fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum!

 

Í nokkur ár höfum við boðið upp á námsbraut fyrir leikskólaliða (59 eininga nám) ásamt því sem kallast leikskólabrú (38 einingar) við góðar undirtektir. Kennt hefur verið einu sinni í viku og nokkra laugardaga á hverri önn. Nemendur hafa aðallega verið leikskólastarfsmenn frá Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ eykur námsframboðið með því að bjóða upp á nám fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum. Um er að ræða brú fyrir stuðningsfulltrúa sem er 41 eininga nám og  námsbraut fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum sem er 62 eininga nám. Við ætlum líka að bjóða upp á svokallaða skólaliðabraut sem er 36 einingar ásamt skólaliðabrú.


Frekari upplýsingar um námið má finna í Aðalnámskrá framhaldsskóla: Námsbrautir fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum. Sjá nánar á þessari slóð: http://www.menntamalaraduneyti.is/nyrit/nr/5052

 

Við erum byrjuð að taka við umsóknum fyrir næstu önn en námið hefst væntanlega í fyrstu viku janúarmánaðar á nýju ári. Kennt er síðdegis á miðvikudögum frá kl. 16.20-20.30. Einnig er kennt 2-3 laugardaga á önn frá kl. 10-14.

Þeir áfangar sem kenndir verða á næstu önn eru eftirfarandi:

 

  • Þroski og hreyfing ÞRO-103
  • Hegðun og atferlismótun HOA-103
  • Kennslustofan og nemandinn KON-103 (einungis fyrir þá sem eru á námsbraut fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum)
  • Almenn félagsfræði FÉL-103

 

Nemendum er frjálst að taka eins marga áfanga af þessum fjórum eins og þeir treysta sér til.  

Athygli skal vakin á því að þeir sem áður hafa lokið námi á námsbraut fyrir leikskólaliða þurfa einungis að bæta við sig áfanganum KON-103 til að ljúka öllum áföngum á námsbraut fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum. Þeir þurfa þó líka að bæta við sig 9 eininga starfsreynslu í grunnskólum sem frekar er lýst í aðalnámsskránni sem vitnað er til hér að ofan. Það mun verða gert í góðri samvinnu við viðkomandi skólayfirvöld.

Ef einhverjar spurningar vakna þá hikið ekki við að hafa samband. Síminn minn er 698 1387

 

Með vinsemd og virðingu

Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir sigrunfh@fg.is

 

Kynning á námi fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum í PDF formati.

 

 

 

 

meira...
25. október 2011 10:01

Fréttabréf foreldraráðs FG

 

Fréttabréf foreldraráðs FG er  komið út. 

Fréttabréfið má nálgast á heimasíðu "Fyrir forráðamenn" 

ásamt upplýsingum um félagið.

meira...

Skrifstofa skólans er opin

virka daga frá kl. 08.00 - 15.00
svarað er í síma til kl. 16.00

 

 

Ath. skilafrestur í uppskriftasamkeppni er

15. febrúar n.k.

Mynd af skólanum
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is
RSS