24. nóvember 2011 14:12
Nýtt kvöldnám fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum!
Í nokkur ár höfum við boðið upp á námsbraut fyrir leikskólaliða (59 eininga nám) ásamt því sem kallast leikskólabrú (38 einingar) við góðar undirtektir. Kennt hefur verið einu sinni í viku og nokkra laugardaga á hverri önn. Nemendur hafa aðallega verið leikskólastarfsmenn frá Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ eykur námsframboðið með því að bjóða upp á nám fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum. Um er að ræða brú fyrir stuðningsfulltrúa sem er 41 eininga nám og námsbraut fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum sem er 62 eininga nám. Við ætlum líka að bjóða upp á svokallaða skólaliðabraut sem er 36 einingar ásamt skólaliðabrú.
Frekari upplýsingar um námið má finna í Aðalnámskrá framhaldsskóla: Námsbrautir fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum. Sjá nánar á þessari slóð: http://www.menntamalaraduneyti.is/nyrit/nr/5052
Við erum byrjuð að taka við umsóknum fyrir næstu önn en námið hefst væntanlega í fyrstu viku janúarmánaðar á nýju ári. Kennt er síðdegis á miðvikudögum frá kl. 16.20-20.30. Einnig er kennt 2-3 laugardaga á önn frá kl. 10-14.
Þeir áfangar sem kenndir verða á næstu önn eru eftirfarandi:
- Þroski og hreyfing ÞRO-103
- Hegðun og atferlismótun HOA-103
- Kennslustofan og nemandinn KON-103 (einungis fyrir þá sem eru á námsbraut fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum)
- Almenn félagsfræði FÉL-103
Nemendum er frjálst að taka eins marga áfanga af þessum fjórum eins og þeir treysta sér til.
Athygli skal vakin á því að þeir sem áður hafa lokið námi á námsbraut fyrir leikskólaliða þurfa einungis að bæta við sig áfanganum KON-103 til að ljúka öllum áföngum á námsbraut fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum. Þeir þurfa þó líka að bæta við sig 9 eininga starfsreynslu í grunnskólum sem frekar er lýst í aðalnámsskránni sem vitnað er til hér að ofan. Það mun verða gert í góðri samvinnu við viðkomandi skólayfirvöld.
Ef einhverjar spurningar vakna þá hikið ekki við að hafa samband. Síminn minn er 698 1387
Með vinsemd og virðingu
Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir sigrunfh@fg.is
Kynning á námi fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum í PDF formati.