Ýmsar síður
Innritun_old

 

Innritun í framhaldsskóla fyrir haustönn 2012

Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 12. til 30. mars
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1996 eða síðar) hefst mánudaginn 12. mars og lýkur föstudaginn 30. mars. Nemendur fá bréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu með veflykli að innritunarvef og leiðbeiningum afhent í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og Mennta- og menningarmálaráðuneytið hvetur nemendur í 10. bekk eindregið til að taka þátt í forinnrituninni.

 

Ný námskrá
Nýnemar í FG hefja nám samkvæmt nýrri námskrá sem byggð er á lögum um framhaldsskóla frá 2008. Hægt er að sjá námsbrautir hér

Innritun annarra en 10. bekkinga verður 4. apríl til 31. maí
Innritun eldri nemenda (fæddir 1995 eða fyrr) sem ekki eru nú í framhaldsskóla eða ætla að skipta um skóla hefst miðvikudaginn 4. apríl og lýkur fimmtudaginn 31. maí. Umsækjendur þurfa að sækja veflykil að innritunarvef á www.menntagatt.is.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 8. júní
Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum úr forinnritun til miðnættis föstudaginn 8. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit.

Starfsbrautir fyrir fatlaða
Rafrænni innritun á starfsbrautir lauk 29. febrúar sl. Þeir sem hafa ekki nú þegar sótt um geta sent viðkomandi framhaldsskóla skriflega umsókn til 1. apríl nk. Stefnt er að afgreiðslu allra umsókna á starfsbrautir fyrir lok apríl.

 

HG-hópur
Við inntöku í HG-hóp er horft til meðaltals einkunna í íslensku, ensku, stærðfræði og hæstu einkunnar í grein sem tengist umsóknarbraut.

 

Aðrar upplýsingar
Innritunin er rafræn og fer fram hér.  Leiðbeiningar um innritun má fá hér.
Inntökuskilyrði á brautir í FG má sjá hér.
Hagnýtir tenglar eru hér til hliðar.  Einnig er hægt að fá frekari upplýsingar í skólanum hjá námsráðgjöfum og stjórnendum.

 

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is
RSS