Listnámsnemar á faraldsfæti

 

 

Vorönnin byrjaði með ýmsum vettvangsferðum hjá listnámsnemum.  Áfanginn MHL113 í myndbandagerð fór í heimsókn til RÚV og skoðaði allt mögulegt sem viðkemur upptökum. Lokaáfanginn á myndlistarbraut fór í Gallerí I8 og skoðaði sýningu Ragnars Kjartanssonar og fengu nemendur áhugaverða fræðslu um gallerírekstur.

Baltasar Kormákur í vel lukkaðri FG-heimsókn

 

Það er gaman frá því að segja að frægasti kvikmyndaleikstjóri Íslands um þessr mundir, Baltasar Kormákur, kom í heimsókn til FG í dag og ræddi m.a. kvikmyndagerð við fjölmiðlafræðinema. Kvikmynd hand hans Contraband hefur slegið í gegn, en þar er að finna stjörnur á borð við Mark Wahlberg og Kate Beckinsale.

Keilumót í kvöld í Keiluhöllinni

 

 

Nemendafélag NFFG stendur fyrir keilumóti í Keiluhöllinni í kvöld kl.20.30. Sex eru saman í liði og er þátttökugjald kr. 1000, sem greiðast skal á skrifstofu NFFG.

Keila er vinsæl íþrótt og gerðar hafa verið frábærar kvikmyndir um þetta, t.d. Kingpin og The Big Lebowski, þar sem allar aðalpersónurnar eru miklir áhugamenn um keilu.

FG mætir MR í 8-liða úrslitum Gettu betur!
Dregið var í átta-liða úrslitum í Gettu betur þann 30. janúar. FG dróst á móti MR og verður viðureignin í sjónvarpssal þann 2.mars. FS mætir Versló, MH mætir Borgarholtsskóla og MA mætir Kvennaskólanum. Þá er bara að bretta upp ermar, FG! Svona lítur þetta út á vef RÚV.is: Föstudagurinn 24. febrúar Fjölbrautaskóli Suðurlands – Verzlunarskóli Íslands Föstudagur 2. mars Menntaskólinn í Reykjavík – Fj ...
Nemendur frá Fuerteventura væntanlegir!
Kanaríeyjabúinn Carlos Herrera, kennari við IES Gran Tarajal á eyjunni Fuerteventura, heimsótti FG fyrir skemmstu og nutu nokkrir spænskunemendur góðs af. Heimsóknin var liður í undirbúningi sérstöku umhverfisverkefni, sem verður unnið í febrúar af nemendum beggja skóla. Verkefnið ber heitið „Peripheral Countries Volunteering for the Environment“ og er um að ræða alþjóðlegt ungmenna-skiptaverkefni sem st ...

Skrifstofa skólans er opin

virka daga frá kl. 08.00 - 15.00
svarað er í síma til kl. 16.00

 

 

Ath. skilafrestur í uppskriftasamkeppni er

15. febrúar n.k.

Mynd af handahófi
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is
RSS