Skólareglur Fjölbrautaskólans í Garðabæ
1. gr.
Gagnkvæm virðing, kurteisi, heiðarleiki og ábyrgð skulu ríkja í samskiptum nemenda og starfsfólks.
2. gr.
Skylt er að sækja allar kennslustundir stundvíslega. Veikindi skal tilkynna samdægurs á skrifstofu skólans.
3. gr.
Vinnufriður skal ríkja í skólanum. Nemendur skulu mæta undirbúnir í kennslustundir, vera virkir og lúta verkstjórn kennara. Kennurum er heimilt að vísa nemendum úr tíma valdi þeir ítrekuðu ónæði.
4. gr.
Nemendur og starfsfólk skulu fara vel með muni skólans, ganga vel um húsnæði og lóð hans og gæta fyllsta hreinlætis innan dyra jafnt sem utan. Neysla matvæla er almennt ekki heimil í kennslustofum né í bókasafni skólans. Heimilt er að hafa með sér lokuð drykkjarílát í kennslustundir.
5. gr.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ er tóbakslaus skóli. Reykingar sem og notkun neftóbaks og munntóbaks eru bannaðar í skólanum og á lóð hans.
6. gr.
Í skólanum, á samkomum eða í ferðalögum á vegum skólans skal enginn hafa um hönd áfengi eða önnur vímuvaldandi efni né vera undir áhrifum þeirra.
7. gr.
Virða skal markmið skólans, stefnu hans og reglur og gæta þess að varpa ekki rýrð á heiður hans.
Brot á reglum þessum geta varðað refsingu s.s. brottvísun úr skóla.
Skólareglur þessar voru samþykktar í skólaráði 28. janúar 2004,
breyting samþykkt í 4. gr. 7. febrúar 2007 og breyting samþykkt í skólaráði 30. ágúst. 2011