* Skólinn er reyklaus. Nemendum og starfsmönnum er óheimilt að reykja í húsnæði
skólans og á skólalóð (frá og með 15. júní 1999). Boðið verður upp á námskeið til
að hætta að reykja.
* Neysla áfengis eða annarra vímuefna er stranglega bönnuð í húsnæði skólans. Sé
nemandi uppvís að neyslu vímuefna innan skólans getur hann valið á milli þess að
leita sér aðstoðar sérfræðinga eða víkja úr skóla.
* Á skólaskemmtunum og ferðalögum í nafni skólans ber nemendum að sýna góða
hegðun. Ósæmileg hegðun, svo sem ölvun, getur varðað brottvísun úr skóla og ber
skólaráði að fjalla um öll slík mál.
* Öllum alvarlegri málum, svo sem sölu eða milligöngu um sölu áfengis, sölu eða
dreifingu ólöglegra fíkniefna er umsvifalaust vísað til lögreglu. Skólaráð ákveður
hvort nemanda sé vísað úr skóla á meðan rannsókn fer fram.
* Forvarnarfulltrúi hefur umsjón með allri fræðslu um tóbak, áfengi og önnur
fíkniefni. Hann tryggir að allir nemendur skólans fái slíka fræðslu. Áhersla er lögð á
að efla samstarf við forráðamenn nemenda og skipuleggur forvarnarfulltrúi m.s.
fræðslufundi fyrir þá. Kennarar skólans eru hvattir til þess að fjalla um forvarnarmál
með markmið skólans í huga, en það er að efla jákvætt viðhorf til lífshátta og
styrkja sjálfsmynd og sjálfsvirðingu nemenda.
* Sérstök áhersla er lögð á að efla andstöðu nemenda gegn neyslu ólöglegra
fíkniefna. Í því skyni er lögð áhersla á lífsleikniþáttinn, að hafa jákvætt viðhorf til
lífsins og vinna gegn allri sjálfseyðandi hegðun. Fjölgað verði þeim þáttum félagslífs
innan skólans þar sem vímuefni eru ekki höfð um hönd.