Reglur um notkun á tölvubúnaði í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
Tölvubúnaður Fjölbrautaskólans í Garðabæ er eign skólans og einungis ætlaður til náms,
kennslu, kynningar og annarra þátta er samræmast markmiðum skólans.
Skólanum er ekki unnt að gera ýtrustu kröfur um öryggi, eins og þær þekkjast í tölvuvinnslu
- en notendum er treyst til þess að virða þær reglur sem hér fylgja.
Nemendur, sem eru að vinna verkefni vegna náms, hafa forgang í tölvur skólans.
Handhafi notendanafns í tölvukerfi skólans er ábyrgur fyrir allri notkun þess.
Skólinn áskilur sér rétt til að fara yfir, skoða og eyða gögnum á gagnasvæðum nemenda til
að tryggja að reglum um notkun búnaðarins sé fylgt.
Gert er ráð fyrir að hver nemandi hafi til umráða heimasvæði að hámarki 10 Mb nema
sérstakt leyfi kerfisstjóra komi til. Fari heimasvæði nemanda yfir 10 Mb, án sérstaks leyfis,
er nemanda veitt viðvörun. Við endurtekið brot er aðgangi lokað án frekari viðvörunar.
Óleyfilegt er:
- að veita öðrum aðgang að notandanafni sínu,
- að reyna að tengjast tölvubúnaði skólans með öðru notandanafni en því sem notandi
hefur fengið úthlutað,
- að nota aðgang að neti skólans til þess að reyna að komast ólöglega inn á net eða tölvur
í eigu annarra,
- að sækja, senda, geyma eða nota á neti skólans forrit sem hægt er að nota til innbrota
eða annarra skemmdarverka,
- að breyta vinnuumhverfi á tölvum skólans þannig að það hafi áhrif á umhverfi og
notkunarmöguleika annarra notenda,
- að breyta, afrita eða fjarlægja vélbúnað, hugbúnað eða gögn sem eru í eigu skólans,
- að afrita hugbúnað eða gögn í eigu annarra án leyfis eiganda,
- setja inn hugbúnað á tölvur skólans án samþykkis kerfisstjóra,
- að senda, sækja eða geyma klámefni eða ofbeldisefni,
- að senda keðjubréf og annan ruslpóst,
- að nota leiki í tölvunum aðra en þá sem fylgja Windows kerfinu,
- að hlusta á útvarp eða horfa á sjónvarp í gegnum netið nema það sé lagt fyrir sem
námsefni af kennara.
Meðferð hvers konar matvæla er bönnuð í tölvuverum skólans.
Að öðru leyti er vísað til notkunarskilmála ISnets og notkunarreglna Íslenska
menntanetsins. Notendur kerfisins skulu að kynna sér þessar reglur þar sem þeir eru
ábyrgir samkvæmt þeim.
Brot á þessum reglum geta leitt til lokunar á aðgangi að tölvum skólans og - sé um
alvarlegt eða endurtekið brot að ræða - brottvísunar úr skóla.
Skólameistari