1.
Allir nemendur, sem fengið hafa skólavist, eru skráðir sem virkir nemendur í
skráningarkerfi skólans í byrjun hverrar annar.
2.
Frestur til að breyta um áfanga annars vegar og hins vegar til að segja sig úr áföngum er
auglýstur í byrjun hverrar annar. Að fresti loknum fjallar skólaráð um þær breytingar sem
kunna að verða í skráningu nemenda í einstaka áfanga og eru þær skráðar.
3.
Í skólaráði eru teknar ákvarðanir um brottvísun nemenda, afgreiddar beiðnir um úrsögn úr
áföngum og haldin skrá yfir þá sem hverfa frá námi.
4.
Forráðamenn skulu staðfesta úrsögn nemenda (undir 18 ára aldri) úr einstökum áföngum
og einnig úrsögn úr skóla.
5.
Nemendur, sem hverfa frá námi eða er vísað úr skóla, eru gerðir óvirkir í skráningarkerfi
skólans.
Skólaráð FG