1. Sækja skal allar kennslustundir stundvíslega.
2. Komi nemandi of seint í tíma fær hann skráða á sig seinkomu. Séu liðnar 15 mín.
af kennslustund þegar nemandi mætir fær hann skráða á sig fjarvist.
3. Veikindi, samfellt í tvo daga eða skemur, lækka skólasóknarprósentu nemenda.
4. Veikindi skal tilkynna hvern veikindadag og staðfesta skriflega ef um veikindi lengur en tvo
daga er að ræða. Staðfestingin skal undirrituð af foreldri, öðrum forráðamanni eða lækni ef
neminn býr enn í foreldrahúsum – og gildir þá einu þótt hann sé orðinn 18 ára. Ef það
gengur ekki þarf annan fullorðinn einstakling til að votta veikindin.
5. Þrálát og/eða langvinn veikindi skal staðfesta með læknisvottorði. Slík vottorð skal
endurnýja á hverju skólaári.
6. Skólasókn, að frádregnum staðfestum veikindum ( þ.e. umfram tvo fyrstu daga veikinda),
skal vera 87% hið minnsta.
7. Ef nemandi fer niður fyrir 91% skólasókn fær hann munnlega áminningu. Verði skólasókn
minni en 89% skal nemandanum veitt skrifleg áminning.
Fari skólasókn niður fyrir 85% má vísa nemandanum úr skóla.
8. Nemendur sem eru með minna en 87% skólasókn eiga ekki vísa skólavist á næstu önn.
9. Ein fjarvist jafngildir einu fjarvistarstigi.
10. Seinkoma jafngildir 0,5 fjarvistarstigum.
11. Ágætiseinkunn fyrir skólasókn gefur eina námseiningu.
12. Einkunnir fyrir skólasókn:
98 – 100% 10 ein eining
96 – 97,9% 9 ein eining
93,5 – 95,9% 8
91 – 93,4% 7
89 – 90,9% 6
87 – 88,9% 5
85 – 86,9% 4
82 – 84,9% 3
80 – 81,9% 2
<80% 1
• Nemendur sem stríða við langvinn veikindi þurfa að skila læknisvottorði á hverju skólaári.
Tekið er sérstakt tillit til þrálátra veikinda. Einnig er tekið sérstakt tillit til nemenda sem
verða mikið veikir eða þurfa að fara oft til læknis. Það er fólgið í því að nemendur geti
sótt um leiðréttingu til stallara þannig að skólasókn þeirra verði endurskoðuð með tilliti
til skráðra veikinda og/eða læknisheimsókna. Þetta er eingöngu gert ef skólasókn
nemenda er að öðru leyti óaðfinnanleg. Stallari mun þá yfirfara og meta þeirra mál
sérstaklega. Miðað er við að gengið sé frá öllum málum varðandi skólasókn við lok
viðkomandi annar.
• Mjög mikilvægt er að nemendur og forráðamenn fylgist vel með mætingum til að komast
hjá því að fá áminningu, brottvísun og/eða höfnun á skólavist á næstu önn.
Nemandi sem ekki nær 87% skólasókn á ekki vísa skólavist á næstu önn. Slík skólasókn
gæti jafngilt því að nemandinn væri fjarverandi um tvær vikur á önninni. Nemanda sem mætir
minna en 85% er heimilt að vísa úr skóla.
• Allir forráðamenn nemenda yngri en 18 ára fá aðgang að upplýsingakerfinu INNU. Þar er
tækifæri til að fylgjast með skólasókninni og mikilvægt að hafa samband við skólann sem
fyrst ef eitthvað er óljóst.
Stallari hefur eftirlit með skólasókn nemenda.
• Nemendur sem mæta vel geta unnið sér inn námseiningar. Nemendur sem fá 9 eða 10 í
skólasókn fá eina einingu á önn sem fer í val á öllum námsbrautum að því tilskildu að
raunmæting sé yfir 89%. Nemandi sem mætir mjög vel í fjögur ár fær þannig 8 einingar í val
fyrir það eitt að mæta; auk þess sem hann nær líka oftast betri árangri í námi.
• Ef nemendur þurfa leyfi frá kennslustundum skal sækja um það til skólaráðs. Leyfi vegna
keppni eða ferðar á vegum íþróttafélags er veitt ef staðfesting frá þjálfara liggur fyrir. Ef
nemendur þurfa leyfi vegna annarra ferða er það skoðað og síðan afgreitt í lok annar á
þann hátt að ef skólasókn er óaðfinnaleg að öðru leyti er leyfið veitt í flestum tilfellum.
• Leyfi vegna jarðarfara og kistulagningar er veitt eftir að fyllt hefur verið út eyðublað sem fæst
á skrifstofu skólans þar að lútandi.
• Ef nemendur vilja gera athugasemd við fjarvistaskráningu sína verða þeir að koma henni skriflega til viðkomandi kennara sem leiðréttir ef þörf krefur, að höfðu við samráði við stallara ef við á. Ekki er hægt að leiðrétta fjarvistir lengra aftur í tímann en sem nemur tveimur vikum og gildir þá einu hvort komið er með vottorð eða ekki.
SKÓLASÓKN OG NÁMSÁRANGUR FYLGJAST AÐ.