Skólinn
Umgengnisreglur


Nokkrar umgengnisreglur í FG
fyrir forystumenn félagslífs.

1.
Ganga skal snyrtilega og vel um húsnæðið. Forystumenn félagslífs eiga að vera öðrum
nemendum fyrirmynd.

2.
Nemendum, sem fengið hafa lykla að húsinu, er óheimilt að lána þá öðrum.

3.
Þjófavarnakerfi hússins fer í gang á mismunandi tímum á ákveðnum svæðum í húsinu.
Forystumenn félagslífs kynni sér málið vel.

4.
Heimilt er að hengja upp auglýsingar á auglýsingatöflur í skólanum svo á veggi á 1. hæð þó
ekki í matsal nemenda. Á öðrum stöðum er óheimilt að hengja upp auglýsingar.

5.
Tilkynna skal húsverði um starfsemi á kvöldin og um helgar.

6.
Skrifstofa skólans veitir aðstoð þegar um viðamikla fjölföldun er að ræða.

 

Samþykkt á fundi skólaráðs 20. ágúst 2003.
 

Skrifstofa skólans er opin

virka daga frá kl. 08.00 - 15.00
svarað er í síma til kl. 16.00

 

 

Ath. skilafrestur í uppskriftasamkeppni er

15. febrúar n.k.

Mynd af skólanum
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is
RSS