Þjónusta
Stefna skólans í forvörnum

 

MARKMIÐ:

Skólinn vill stuðla að heilbrigðum lífsháttum og jákvæðri lífssýn nemenda sinna og vinna gegn hverskyns sjálfseyðandi hegðun.

LEIÐIR:

Markmiðum þessum hyggst skólinn ná með því að

 hafa sérstakan forvarnafulltrúa sem annast skipulagningu forvarnarstarfs skólans

 Forvarnarfulltrúi
 
er boðberi forvarna innan skólans. Hann er talsmaður ákveðinna hugmynda gagnvart
   stjórnendum,  starfsmönnum, nemendum og forráðamönnum. 
miðlar upplýsingum til nemenda og aðstandenda þeirra með viðtalstímum,
   upplýsingabanka og fræðslufundum 
vinnur að stefnumörkun skólans í forvarnarmálum 
gerir forvarnaráætlun fyrir starfstímabil skólans og er ábyrgur fyrir framkvæmd hennar 
aðstoðar við samþættingu forvarna við annað skólastarf, t.d. kennslu 
heldur utan um 1. stigs forvarnir og leitar leiða til að bæta slæmt ástand, t.d í félagslífi 
hefur inngrip í mál nemenda þar sem íhlutunar er þörf og metur hvert tilfelli fyrir sig 
gætir trúnaðar gagnvart skjólstæðingum sínum 
starfar með forvarnarteymi sem er honum til ráðuneytis.

• standa fyrir forvarnarfræðslu fyrir nemendur, starfsmenn skólans og aðstandendur
   nemenda

Forvarnarfulltrúi hefur umsjón með allri fræðslustarfsemi um tóbak, áfengi og önnur
  vímuefni. Hann kemur á framfæri upplýsingum um niðurstöður rannsókna á stöðu og líðan
  unglinga, samskipti og fræðslu um fyrirbyggjandi þætti varðandi áhættuhegðun o.fl.
Fræðslan er fyrir þrjá markhópa; nemendur, starfsmenn skólans og aðstandendur
  nemenda.
Allir starfsmenn hljóti menntun og þjálfun í að þekkja einkenni, sem nemendur í vanda bera
  oft með sér, og viti hvert vísa á slíkum málum.
Haldnir verði reglulega umræðu- og fræðslufundir með foreldrum og forvarnarstarf skólans
  og viðtalstímar forvarnarfulltrúa sé vel kynnt meðal foreldra.
Ýmsir aðilar verði fengnir til að sjá um fræðslu fyrir nemendur. Jafnframt fræðslu um áhættu
  af neyslu fíkniefna sé lögð áhersla á að kynna aðra valkosti og lífshætti þar sem neysla
  fíkniefna á ekki við eða er ekki eftirsóknarverð.

• flétta forvarnir með einum eða öðrum hætti inn í allar námsgreinar skólans

Forvarnarfulltrúi stýrir vinnu kennara við að finna leiðir til að flétta forvarnir inn í skólastarfið
  og kennsluna, t.d. með því að
halda vinnufundi þar sem kennarar safna hugmyndum innan faghópa og þverfaglega
safna skýrslum um samþættingu forvarnarefnis og annars námsefnis
dreifa sýnishornum af slíku efni meðal kennara

• sjá nemendum fyrir viðfangsefnum sem styrkja sjálfsmynd og sjálfsvirðingu

Ráðgjöf um námsval miði að heilbrigðu sjálfsmati. Nemandi taki það nám sem hann hefur
  forsendur til að ráða við, kemur honum að gagni og er honum ekki á móti skapi, þannig að
  hann finni að hann tilheyri skólanum og geti náð árangri.
Leitað verði leiða til að þjálfa tilfinningalega færni, vitsmunalega færni og hegðunarfærni
  nemenda, sér í lagi nemenda sem vitað er að eiga í erfiðleikum og eru í áhættuhópi
  varðandi vímuefnanotkun.

reyna að koma í veg fyrir eða seinka reykingum, áfengisdrykkju og neyslu annarra fíkniefna

Unnið verði að því með
 
fræðslu um langtímaskaðsemi tóbaks, áfengis og annarra fíkniefna
með skýrum reglum um umgengni um ávana- og fíkniefni og viðurlögum við brotum á þeim
námskeiðum fyrir þá sem vilja hætta að reykja
framboði og fræðslu um aðra valkosti sem veita upplifun, s.s. áreynslu í íþróttum,
  ferðamennsku, listiðkun (söng, dans, leiklist), verkstæðisvinnu, glímu við gátur og
  þrautir og önnur viðfangsefni sem stuðla að aukinni lífsnautn og lífsgleði
hvatningu til nemenda til að taka þátt í hjálparstarfi eða öðru starfi þar sem nemandinn
  finnur að hann getur látið gott af sér leiða
stuðningi við hvers konar áhugamál sem gætu aðstoðað einstaklinginn við að lifa
  merkingarbæru lífi

• stuðla að viðburðum á vegum skólans og félagslífi nemenda sem einkennast af
  heilbrigðum lífsháttum og efla lífsgleði

Tómstundastarf og skemmtanalíf án vímuefna verði styrkt í sessi með því að skólinn
  gangist fyrir sérstökum uppákomum, s.s. danskennslu og vímulausum skemmtikvöldum.
Nemendur verði hvattir og styrktir til að leita upplifunar með þátttöku í listum, hönnun,
  íþróttum, ferðamennsku eða öðrum viðfangsefnum sem aðstoða nemandann við
  að finna lífi sínu tilgang.

• setja skýrar reglur um til hvers sé ætlast af nemandanum varðandi umgengni um
  ávana- og fíkniefni og hver séu viðurlög við brotlegri hegðun

Reglur skólans eru:

     o Skólinn er reyklaus. Nemendum og starfsmönnum er óheimilt að reykja í húsnæði
        skólans og á skólalóð (frá og með 15. júní 1999).
     o Neysla áfengis eða annarra vímuefna er stranglega bönnuð í húsnæði skólans.
        Sé nemandi uppvís að neyslu vímuefna innan skólans getur hann valið á milli þess
        að leita sér aðstoðar sérfræðinga eða víkja úr skóla.
     o Á skólaskemmtunum og ferðalögum í nafni skólans ber nemendum að sýna góða
        hegðun. Ósæmileg hegðun, svo sem ölvun, getur varðað brottvísun úr skóla og
        ber skólaráði að fjalla um öll slík mál.
     o Öllum alvarlegri málum, svo sem sölu eða milligöngu um sölu áfengis, sölu eða
        dreifingu ólöglegra fíkniefna er umsvifalaust vísað til lögreglu. Skólaráð ákveður hvort
        nemanda sé vísað úr skóla á meðan rannsókn fer fram.

• gera áætlun um viðbrögð til að aðstoða ungmenni sem eru í áhættuhópi

Stofna stuðningshópa fyrir nemendur í áhættuhópi.
Skilgreina tilvísunaraðila innan og utan skólans þegar íhlutunar er þörf og stofna til tengsla
   við þá, s.s.
     o námsráðgjafa
     o heilsugæslu skólans
     o almenna heilsugæslu
     o sálgæslu og áfallahjálp (prests, djákna)
     o sálfræðing
     o meðferðaraðila

• taka þátt í að samstilla krafta þeirra sem vinna gegn áfengis- og fíkniefnanotkun í
  umhverfi nemenda sinna


Forvarnarfulltrúi og forvarnarteymi séu í beinu sambandi við og fái hugmyndir frá m.a.

fræðslumiðstöð í fíknivörnum, FRÆ
forvarnarstarfi á vegum menntamálaráðuneytis
forvarnarstarfi á vegum Garðabæjar og Bessastaðahrepps
forvarnarumræðu á vegum samtaka skólastjórnenda
SÁÁ, samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann
lögreglu
kirkju

• vera með stefnumörkun í forvörnum í sífelldri endurskoðun

Stefnumörkunin verði endurskoðuð reglulega af

forvarnarteymi
kennarafundi
skólanefnd
stjórn NFFG eða þeim aðila sem stjórnin vísar til
 

Skrifstofa skólans er opin

virka daga frá kl. 08.00 - 15.00
svarað er í síma til kl. 16.00

 

 

Ath. skilafrestur í uppskriftasamkeppni er

15. febrúar n.k.

Mynd af skólanum
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is
RSS