Veikindi skal tilkynna hvern veikindadag og staðfesta skriflega ef um veikindi lengur en tvo daga er að ræða.Staðfestingin skal undirrituð af foreldri, öðrum forráðamanni eða lækni ef neminn býr enn í foreldrahúsum – og gildir þá einu þótt hann sé orðinn 18 ára. Ef það gengur ekki þarf annan fullorðinn einstakling til að votta veikindin. Skila skal staðfestingu innan þriggja daga frá því að veikindum lýkur.
Eyðublað til staðfestingar veikindum fæst á skrifstofu og heimasíðu skólans. Nemendur sem stríða við langvinn veikindi þurfa að skila læknisvottorði á hverju skólaári. Tekið er sérstakt tillit til þrálátra veikinda.
Eyðublað fyrir veikindatilkynningar
Skrifstofa skólans er opin
virka daga frá kl. 08.00 - 15.00svarað er í síma til kl. 16.00
Ath. skilafrestur í uppskriftasamkeppni er
15. febrúar n.k.