Einkunnaafhending og prófsýning

 

Einkunnaafhending fer fram á miðvikudaginn (16.4) kl. 13.00 og prófsýning þar á eftir. Myndin hér að ofan tengist þessu kannski ekki beint en er athyglisverð útgáfa af látnu poppgoði, málað af einhverjum nema í FG. Skólinn er jú fullur af list og lokaverkefnum um þessar mundir.

Dimmision samkvæmt venju

 

Útskriftarnemar dimmiteruðu að venju föstudaginn 27.apríl. Upp úr klukkan 9.20 fóru að streyma skringilega klæddar og litum skrýddar verur að skólanum. Skömmu síðar fylltist skólinn af gleði og glaumi. Nemendum var smalað niður á sal, leikið var með kennara og skólameistara, sungið og trallað. Að skemmtun lokinni héldu svo útskriftarefnin út í vorið á vit ævintýranna.

 

Listasýning opnuð - ísjörð vakti athygli
Sýning listnema FG var opnuð að viðstöddu fjölmenni, þriðjudaginn 24.apríl, í Borgarbókasafninu, niðri við Reykjavíkurhöfn. Allskonar list er þar á ferðinni, en þessi ísjörð vakti athygli. Hún bráðnaði þegar leið á sýninguna. Samkvæmt höfundinum, Össu Þorvarðardóttur, átti verkið að sýna fram á örlög jarðar, ef ekkert er aðhafst í umhverfismálum. Alls eru 16 höfundar listaverka með í sýningunni. Aðgangur er ókey ...
Stuttmyndavika í fyrirlestrarsalnum
Stuttmyndavika verður haldin í FG frá miðvikudegi (í dag 25.4), fram á föstudag. Sýndar verða stuttmyndir í hverju hádegishléi, í fyrirlestrarsalnum, á neðstu hæð skólans. Á dagskránni er meðal annars draugasagan Hengimann, tónlistarmyndbönd og fleira. Allir velkomnir!
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ • Skólabraut • 210 Garðabæ • Sími: 520-1600 • Fax: 565 1957 • Netfang: fg@fg.is
RSS