Námsráðgjafar

Við Fjölbrautaskólann í Garðabæ starfa tveir náms- og starfsráðgjafar í fullu starfi. Þeir hafa aðsetur á A-gangi skólans.

Hlutverk þeirra er að veita nemendum aðstoð í málum sem tengjast námi þeirra, náms- og starfsvali og persónulegum málum.

Náms- og starfsráðgjafar standa vörð um velferð nemenda, eru málsvarar þeirra, trúnaðarmenn og eru bundnir þagnarskyldu. Þeir þurfa þó að rjúfa trúnað ef velferð nemanda er stefnt í hættu.

Nemendur, forráðamenn, stjórnendur og kennarar geta leitað til námsráðgjafa vegna ýmissa mála.

Allir nemendur eru velkomnir til námsráðgjafa hvert sem erindið er.

Dagný

Dagný Broddadóttir náms- og starfsráðgjafi, dagny@fg.is

Auður

Auður Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi audur@fg.is