EÐLI2GÁ05 - Grunnáfangi

Undanfari : STÆR2FJ05

Lýsing

Í þessum fyrsta áfanga í eðlisfræði er byrjað á því að láta nemendur vinna með hugtök og þekkingu úr grunnatriðum aflfræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru í þessari grein. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.