Hjúkrunarfræðingur

Ásdís Eckardt er skólahjúkrunarfræðingur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og er með fasta viðveru í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ:
  • Mánudaga 9-14
  • Miðvikudaga 9-12 ( september og október 2026)
  • Fimmtudaga 9-12
Ásdís er með aðsetur á skrifstofugangi, önnur skrifstofa til vinstri þegar gengið er inn.
Þjónustan er á formi einstaklingsmiðaðrar ráðgjafar. Áherslan er á vegvísi um heilbrigðiskerfið og verður boðið upp á fræðslu og ráðgjöf við vægum vanda, s.s. tengdum geðheilbrigði, kynheilbrigði, félagslegum vanda og almennu heilbrigði.
Þjónustan er viðbót við þá stuðningsþjónustu sem nú þegar er til boða í skólunum og er nemendum og skólunum að kostnaðarlausu.
Nemendur eru alltaf velkomnir en þeir ganga fyrir sem eiga bókaðan tíma.