3. fundur skólaráðs - vorönn 2026

Skólaráð Fjölbrautaskólans í Garðabæ

3. fundargerð á vorönn 8. apríl 2026

  1. Umsóknir um leyfi

    Að þessu sinni lágu 20 leyfisbeiðnir fyrir fundinum. Afgreiðsla umsókna um leyfi verður send á netfang viðkomandi nemanda. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Leyfi felur í sér undanþágu frá tímasókn en ekki námi. Leyfi vegna keppnisferða, landsliðsverkefna og þátttöku í ungmennastarfi eru afgreiddar um leið og staðfesting berst frá félagi/samtökum en umsóknir um önnur leyfi fá ekki endanlega afgreiðslu fyrr en í lok annar. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Samþykkt leyfisumsókna er háð því að skólasókn sé að minnsta kosti 97% fyrir utan þá 1-5 daga sem sótt er um leyfi fyrir.
  2. Önnur bréf.

    Nemendur sem sóttu um mat á íþróttum á vorönn 2026 voru 70. Af þeim fengu 67 nemendur samþykkt en þremur var hafnað.
  3. Af vettvangi NFFG

    Á döfinni er:
    • Góðgerðarvika 20.-24. apríl. Öllum áskorunum verður safnað í einn pott og hver og ein nefnd verður með sér áskorun. Dæmi um áskoranir. Hópur nemenda ætlar að hoppa heila nótt og annar hópur að sofa í tjaldi fyrir utan skólann.
    • FG er komið í fjögurra liða úrslit fyrir Morfís og keppir við Kvennó á morgun 9. apríl.
    • Úrslit Söngkeppni framhaldsskóla verða þann 11. apríl í Háskólabíói. Okkar fulltrúi í keppninni verður Sigurður Snorri Blomsterberg.
    • Kosningar NFFG og Verðanda fyrir næsta skólaár verða 4. maí nk. Framboðsfrestur rennur út vikuna áður.
    • Skemmtinefnd verður með uppbrot og dagskrá í næstu viku. Vikuna 27. apríl – 1. maí verður Geitin með uppbrotsviku og þá kemur út nýtt skólablað. Minnt á að prófarkalestur er í boði og nemendur hvattir til að nýta sér hann.
    • Góðgerðarvika verður eftir páska.
    • Síðasta leiksýning Verðandi er í kvöld 8. apríl.
    • Halla Stella spyr hvort möguleiki sé að hafa bóksafnið opið meira nú í lok skólaárs. Kristinn lofar að skoða málið. Rætt um námsaðstöðu nemenda í framhaldinu, jafningjastuðning og fleira.
  1. Önnur mál

    • Opið hús verður 21. apríl. NFFG verður með opna stofu þar sem sýnt verður myndband, glærur og spjallað við áhugasöm.
    • Vörumessa, frumkvöðlafræðinema verður 17. og 18. apríl.
    • Ragnhildur Hólm forstöðumaður ungmennahúss Garðabæjar hafði samband við Berglindi og óskaði eftir samstarfi við nemendur.
    • Óskað er eftir fjórum til átta fulltrúum til að taka þátt í málþingi um samspil íþróttastarfs og skólagöngu ungs fólks á aldrinum 15- 25 ára. Halla Stella og Magnús ætla að taka málið að sér.

Fundinn sátu:

  • Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari og fundarritari
  • Auður Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
  • Berglind M. Valdimarsdóttir, forvarnarfulltrúi
  • Dagný Broddadóttir, náms- og starfsráðgjafi
  • Guðmundur S. Gíslason, verkefnastjóri
  • Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, forseti NFFG
  • Hilmar Þór Sigurjónsson, kennari
  • Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
  • Magnús Emil Pétursson, fjármálastjóri NFFG
  • Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir, kennari
  • Tinna Ösp Arnardóttir, félagsmálafulltrúi