Fundur foreldraráðs 19. nóvember 2026
Fundarherbergi FG – fimmtudaginn 19. nóvember 2026 kl 17:00
Mætt:
- Halldóra
- María
- Elva
- Hulda
- Atli
- Anna Dögg
- Hilmar (forvarnarfulltrúi)
Fundarritari:
Hilmar Þór Sigurjónsson
Dagskrá fundar:
-
Félagslíf NFFG
Félagslíf nemenda næstu vikur. Hilmar segir frá því sem framundan er hjá nemendum. Salsa ball í næstu viku þar sem óskað er eftir foreldrum til að standa vaktina. Í kjölfar forvarnarviku verður jólavika nemendafélagsins. Jarmið verður svo í janúar og svo skíðaferðin í lok janúar.
-
Forvarnarvika 2026
Framundan er forvarnarvika skólans, skipulögð af forvarnarfulltrúa. Jólaávextir verða í boði í vikunni ásamt heilsugraut þar sem NFFG stendur vaktina. Lögreglan mætir á þriðjudeginum og hjálpar okkur að ausa graut fyrir nemendur ásamt því að taka spjall við þá. Á miðvikudeginum verður skemmtiatriði á sal frá tónlistarmanni (ekki ákveðið en verið er að ræða við Pál Óskar, Emmsjé Gauta og Jón Jónsson) og eftir hádegi ætlar Samgöngustofa ásamt samfélagslöggunni að mæta og ræða við nemendur á sal um umferðaröryggi. Í kjölfarið verður nemendum gefin endurskinsmerki. Á fimmtudeginum verður Skólaþing FG haldið í miðjustokki. Þar ræða nemendur umferðaröryggi.
-
Á döfinni - Salsa ballið vakt
Gert er ráð fyrir 2-3 foreldrum á hvert ball. Á fyrsta ballið, nýnemaballið, voru Atli, Björg og Alma viðstödd fyrir hönd foreldraráðs. Á Salsa ballinu verða Halldóra, Atli og Elva.
Á Salsa ballinu verða um 530 manns en það verður haldið á Hafnartorgi og fram koma stórir tónlistarmenn á borð við Birni, Séra Bjössa, FM95blö, Alaska, Hausst og fleiri.
Foreldrar vilja endilega hafa hátalara fyrir utan ballið með tónlist fyrir þau sem eru í röðinni.
Í Salsavikunni verður einnig salsa kennsla og á síðasta fundi var samþykkt að foreldrafélagið byðist til að borga fyrir kennsluna. Danskennarinn kostar 30 þúsund og var það lagt fyrir stjórn að greiða reikninginn sem var samþykkt.
-
Sjóður foreldraráðs og aðbúnaður nemenda
Staða sjóðsins er 225.000 krónur.
Á fundinum í apríl var samþykkt að kaupa áhöld og búnað til afþreyingar fyrir nemendur í skólanum; borðtennis spaða og bolta, spikeball, pógó, píluspjald.
Forvarnarfulltrúi keypti bolta fyrir pogo leiki, pílur í píluspjaldið, borðtennisbolta og fleira.
Í fyrra var gjald foreldrafélagsins 3.000kr en árið áður var það 3.500kr. Í fyrra var þó talsvert minna um að fólk greiddi gjöldin og því þarf að auglýsa það vel.
Í ár verða sendir út greiðsluseðlar til foreldra nú í nóvember og svo minnt á það í febrúar aftur. Þannig er reynt að koma til móts við þá staðreynd að það er jólatörn framundan hjá fjölskyldum.
Gjaldið í ár verður áfram 3.000kr en mikilvægt er að auglýsa foreldrafélagið vel þegar greiðsluseðlarnir verða sendir út.
Búast má því við að sjóðurinn stækki umtalsvert og nái hátt í 700þús á skólaárinu takist vel til að virkja fólk til að greiða. Sendur verður út póstur af hálfu stjórnenda til að segja frá starfinu og ýta við fólki að greiða.
-
Áfengisvarnir
Á fundi í fyrra, janúar 2026, var farið yfir verklag gagnvart áfengisvörnum. Ljóst er að aðrir skólar eru ekki að fylgja sama verklagi og FG. Sama kvöld og Salsa ball er verður Eplaball Kvennó þar sem enginn þarf að blása. Þar var bókað:
"Skólameistari fór yfir núverandi verklag varðandi áfengisvarnir. Fyrsta árs nemar eru beðnir um að blása í áfengismæli fyrir böll, en það sama á ekki við um annars árs nemendur. Nokkrum finnst þetta gefa röng skilaboð og líta má á það sem óformlegt „grænt ljós“ á áfengisneyslu hjá eldri nemendum. Skólameistari lagði áherslu á að markmiðið væri að draga úr áfengisneyslu innan skólans og helst útrýma henni. Einnig var rætt um áfengislög og þá staðreynd að áfengisneysla undir 20 ára aldri er óheimil, þótt fáir fylgi þeirri framkvæmd."
-
Foreldrakvöld?
Rætt var um að halda foreldrakvöld í mars. Líklega er stefnt á Imbruvikuna.
Hugmyndir sem komu fram:
- Bjóða upp á léttar veitingar frá t.d. Sóma.
- Hugsanlegir gestir: Anna Steinsen, fyrirlestrar frá Foreldrahúsi? Mikilvægt er að bóka góða fræðslu hér.
- Að lokum verði opinn fundur með stjórnendum og námsráðgjöfum skólans.
- Foreldrar fái tækifæri til að skoða skólahúsnæðið (opið hús).
- Auglýsa þurfi viðburðinn með tölvupósti og skráningu á Facebook.
- Einnig verði foreldrum sem eiga nemendur eldri en 18 ára boðið.
-
Önnur mál
Athugað verður með að mögulega spila tónlist í matsalnum í hádeginu.
Fundi slitið kl 18:16