4. fundur skólaráðs - miðönn 2025-2026

4. fundargerð á miðönn 28. janúar kl. 11.10

 

  1. Umsóknir um leyfi

    Að þessu sinni lágu 26 leyfisbeiðnir fyrir fundinum. Afgreiðsla umsókna um leyfi verður send á netfang viðkomandi nemanda. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Leyfi felur í sér undanþágu frá tímasókn en ekki námi. Leyfi vegna keppnisferða, landsliðsverkefna og þátttöku í ungmennastarfi eru afgreiddar strax en umsóknir um önnur leyfi fá ekki endanlega afgreiðslu fyrr en í lok annar. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Samþykkt leyfisumsókna er háð því að skólasókn sé að minnsta kosti 97% fyrir utan þá 1-5 daga sem sótt er um leyfi fyrir.
  2. Önnur bréf

    Einn nemandi segir sig frá námi í FG.
    Nemandi óskar eftir að taka menn3sa05 og fjár2fl05 á vorönn í fjarnámi. Hafnað þar sem áfangar verða ekki kenndir.
  3. Af vettvangi NFFG

    Á döfinni er:
    • Ragnhildur Hólm forstöðumaður Ungmennahúss Garðabæjar óskar eftir því að koma í heimsókn í FG og kynna starfssemina í samráði við ykkur. Velt tekið í hugmyndina og stungið upp á að hún heimsæki FG í upphafi næstu annar og sérstakur viðburður í Ungmennahúsinu, fyrir FG fylgi í kjölfarið.
    • Foreldraráð hefur leitað til NFFG og óskað eftir hugmyndum um hvernig megi styðja við félagslíf nemenda. Hugmynd um að laga poolborðið og fá upplýsingaskjá.
    • Vegna FG-Flens. Nemendur óska eftir að skólinn taki þátt í að greiða fyrir rútur þegar þau sækja Flensborg heim 3. mars næstkomandi. Samþykkt að hafa sama sama hátt og síðast.
    • Mikill spenningur fyrir skiðaferð á morgun. Í henni taka þátt 63 nemendur.
    • Rætt um gull og silfurmiða fyrir árshátíð.
    • Morfísliðið er komið vel á stað. Keppnin hefst í næstu viku þegar keppt verður við FG.
    • Það gengur vel með glösin. Nauðsynlegt að halda málinu vakandi og almennt að ganga vel um.
    • Söngkeppnin gekk vel. Tíu atriði kepptu. Sigur vann Sigurður Snorri Blomsterberg sem keppir fyrir hönd FG þann 11. apríl.
    1. Önnur mál

 

Fundinn sátu:

  • Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari og fundarritari
  • Auður Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
  • Berglind M. Valdimarsdóttir, forvarnarfulltrúi
  • Dagný Broddadóttir, náms- og starfsráðgjafi
  • Guðmundur S. Gíslason, verkefnastjóri
  • Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, forseti NFFG
  • Ingvar Arnason, áfangastjóri
  • Magnús Emil Pétursson, fjármálastjóri NFFG
  • Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir, kennari
  • Tinna Ösp Arnardóttir, félagsmálafulltrúi