Fundur foreldraráðs 21. janúar 2026

Fundargerð Foreldraráðs FG

Kaffistofa starfsfólks FG – miðvikudagur 21. janúar 2026
Mættir:

  • Arnrún Sveina Kevinsdóttir
  • Berglind M. Valdimarsdóttir
  • Hrefna Björk Ævarsdóttir
  • Hulda Karen Guðmundsdóttir
  • Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
  • Sigurbjörg Stefánsdóttir

Fundaritari: Berglind M. Valdimarsdóttir

  1. Áfengisvarnir og verklag í FG

    Skólameistari fór yfir núverandi verklag varðandi áfengisvarnir. Fyrsta árs nemar eru beðnir um að blása í áfengismæli fyrir böll, en það sama á ekki við um annars árs nemendur. Nokkrum finnst þetta gefa röng skilaboð og líta má á það sem óformlegt „grænt ljós“ á áfengisneyslu hjá eldri nemendum. Skólameistari lagði áherslu á að markmiðið væri að draga úr áfengisneyslu innan skólans og helst útrýma henni. Einnig var rætt um áfengislög og þá staðreynd að áfengisneysla undir 20 ára aldri er óheimil, þótt fáir fylgi þeirri framkvæmd.
  2. Foreldrakvöld

    Rætt var um að halda foreldrakvöld í mars, líklega í kringum 10. mars. Hugmyndir sem komu fram:
    • Bjóða upp á léttar veitingar frá t.d. Sóma.
    • Hugsanlegir gestir: Anna Steinsen, Embla og Kári (Riddarar kærleikans).
    • Að lokum verði opinn fundur með stjórnendum og námsráðgjöfum skólans.
    • Foreldrar fái tækifæri til að skoða skólahúsnæðið (opið hús).
    • Auglýsa þurfi viðburðinn með tölvupósti og skráningu á Facebook.
    • Einnig verði foreldrum sem eiga nemendur eldri en 18 ára boðið.
  1. Kærleiksvika – mál frá fyrri fundi

    Áður hafði komið fram hugmynd um að halda kærleiksviku í anda verkefnis forseta Íslands, Riddarar kærleikans. Forvarnarfulltrúi mun kanna hvort hægt sé að halda kærleiksviku í FG með stuðningi foreldrafélagsins. Þá líklega með Góðgerðarvikunni.
    Möguleg framkvæmd:
    • Fræðsluerindi og kynning á kærleiksvikunni fyrir foreldra, vikuna á undan.
    • Í kjölfarið færi kærleiksvikan fram innan skólans.
    • Stjórnir, nefndir og nemendur tækju þátt í verkefnum á borð við kærleikshring, stöðvar, lituð armbönd með táknrænu gildi, spurningar, myndbönd o.fl.. Nánari útfærsla verður unnin þegar nær dregur.
  1. Fjárhagur foreldrafélagsins

    Sjóður foreldrafélagsins stendur í 735.000 kr.
  2. Erindi frá nemendafélaginu

    Nemendafélagið og heilsunefndin óskaði eftir að foreldraráð skoðaði:
    • Verð á padelspöðum fyrir nemendur.
    • Styrk til kaupa á auglýsingaskjá og þráðlausu hátalarakerfi.
      Foreldrafélagið er jákvætt fyrir því að skoða málið nánar.
  1. Önnur mál

    • Árshátíð nemenda verður haldin 12. mars, fyrst í Hörpu og síðan í Gamla bíó.
    • Athugað verður hvort tveir foreldrar geti staðið vaktina fyrir utan ballið.
    • Foreldrum og forvarnarfulltrúa finnst sérstakt að það sé tveggja tíma hlé á mill matar og balls.