4. fundur skólanefndar 2025-2026

4. fundur skólanefndar FG á skólaárinu 2025-2026

Miðvikudaginn 6. maí 2026 kl. 11:45.

Mætt voru:

  • Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
  • Stefán Snær Stefánsson, formaður
  • Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, forseti NFFG
  • Hulda Hlín Ragnars, Inga Rós Reynisdóttir
  • Tinna Borg Arnfinnsdóttir, fulltrúar í skólanefnd
  • Snædís Snæbjörnsdóttir, fulltrúi kennara
  • Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari.

 

Gestir fundarins voru Halla Stella, forseti NFFG og Vilhjálmur Sigurjónsson, kerfisstjóri.

    1. Fjármál og starfsemi skólans

      Niðurstaða síðasta árs var mun ásættanlegri en leit út fyrir. Fjármál skólans eru í góðu lagi og afkoma ársins 2025 var liðlega 50 milljónir. Alltaf eru einhver óljós atriði í fjárhagsáætlunargerð, t.d. vitum við aldrei alveg hvað húsaleiga hækkar mikið. Kappkostað er í skólanum að kennarar séu vel tækjum búnir og nú geta kennarar valið um hvort þeir vilja apple eða pc tölvur.>

      Skólastarfið gengur vel og er á lokametrunum og eðlilega eru nokkrar annir núna. Rætt um nemendafjölda komandi haust.
    2. Ytra mat

      Skólinn fór í ytra mat nú á vormánuðum. Stjórnendur eru ánægðir með úttektina og skýrslan hefur verið birt á heimasíðu mennta- og barnamálaráðuneytis. Í kjölfarið verður unnin umbótaáætlun í skólanum. Þá má búast við að skýrslan verði umfjöllunarefni á vinnudögum kennara í annarlok.
    3. Kynning

      Vilhjálmur Sigurjónsson kynnir starf kerfisstjóra í FG. Starfið er margslungið og snertir tölvukerfi og búnað í skólanum og þjónustu við nemendur og starfsfólk. Hann segir upplýsingatæknimál í skólanum í góðu horfi.
    4. Önnur mál

      Búumst við að innritun verði svipuð og síðasta ár. Lokað verður fyrir umsóknir um skólavist 10. júní. Nemendaígildi eru 740. Kosningar í NFFG standa yfir núna.

 

Anna María mun senda út fundargerðina.

Fundi slitið kl. 13:00

Fundarritari: Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari