1. fundur skólaráðs - vorönn 2026
1. fundargerð á vorönn 25. febrúar kl. 11.10
-
Umsóknir um leyfi
- Að þessu sinni lágu 31 leyfisbeiðni fyrir fundinum.
Afgreiðsla umsókna um leyfi verður send á netfang viðkomandi nemanda.
Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn.
Leyfi felur í sér undanþágu frá tímasókn en ekki námi.
Leyfi vegna keppnisferða, landsliðsverkefna og þátttöku í ungmennastarfi eru afgreiddar strax en umsóknir um önnur leyfi fá ekki endanlega afgreiðslu fyrr en í lok annar.
Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn.
Samþykkt leyfisumsókna er háð því að skólasókn sé að minnsta kosti 97% fyrir utan þá 1-5 daga sem sótt er um leyfi fyrir.
-
Önnur bréf
- Umsókn um undanþágu í dönsku. Vísað til deildar erlendra mála til umsagnar.
-
Af vettvangi NFFG
Nemenda- og leikfélagi hrósað fyrir flotta kynningu og atriði úr leikriti á opnum fundi.
Magnús Emil leggur fram áætlun vegna árshátíðar, ball og matur.
Á döfinni er:
- Árhátíð þann 12. mars, matur í Norðurljósasal Hörpu og ball í Gamla bíó.
- Rætt um fyrirkomulag miðasölu, verður með svipuðum hætti og í fyrra.
- Nemendafélag ekki komin með stað fyrir nemendur á milli matar og balls.
- FG-Flens 2. mars, fyrirkomulag dagsins rætt, keppnisgreinar kynntar á opnum fundi. Boðið verður upp á rútur í Hafnarfjörð en ekki til baka.
- Morfískeppnin verður í mars. FG keppir við Borgarholtsskóla.
- Kynningar á framhaldsskólum framundan. Auður, Ingvar, Magnús Emil og Halla Stella að fara fyrir hönd skólans í Salaskóla og Seljaskóla.
-
Önnur mál
- Eyþór Wheeley Guðjónsson, gestur fundarins, ræðir um framboð á mat í mötuneyti nemenda. Hann segir að nemendur vilja gjarnan sjá fjölbreyttara framboð og meira af hollum valkostum. FG er heilsueflandi framhaldsskóli og mikilvægt að fylgja þeim viðmiðum. Rætt um hvort nemendur gætu komið með tillögur að breytingum á framboði og hugmynd að matseðli.
- Fjarnám vorannar – búið er að loka fyrir skráningu og ákveða hvaða hópar verða kenndir.
Fundinn sátu:
- Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari og fundarritari
- Auður Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
- Berglind M. Valdimarsdóttir, forvarnarfulltrúi
- Eyþór Wheeley Guðjónsson, gestur
- Guðmundur S. Gíslason, verkefnastjóri
- Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, forseti NFFG
- Hilmar Þór Sigurjónsson, kennari
- Ingvar Arnason, áfangastjóri
- Magnús Emil Pétursson, fjármálastjóri NFFG
- Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir, kennari
- Tinna Ösp Arnardóttir, félagsmálafulltrúi