Opinn fundur í Urðarbrunni FG - 7. október 2026

Áður en fundurinn hófst var skemmtiatriði, Haukur og Hjölli tóku lagið Draumur um Nínu
en höfðu breytt textanum í Draum um Kidda.

Eftir lagið setti Kristinn Þorsteinsson (KÞ) skólameistari fundinn og bauð gesti velkomna.

KÞ fór yfir spurningar sem borust höfðu fyrir fundinn:

  • Getur skólinn byrjað seinna á morgnana?
    KÞ setti upp stutta könnun og hvatti fundargesti til að svara spurningu um hvort þeir vildu hafa óbreytt ástand þ.e. byrja 8:10 og hætta 15:15 eða byrja 8:55 og hætta kl. 16:00. Yfirgnæfandi meirihluti eða 88% þeirra sem tóku þátt kusu að hafa upphaf skóladags óbreyttan.
  • Er hægt að hafa skotboltaáfanga í íþróttum?
    Vísað til íþróttadeildar. Ef nægilegur fjöldi fæst þá er getur þetta orðið að veruleika.
  • Hvernig ætla stjórnendur að taka á klíkumyndun sem myndast í nefndum NFFG?
    Eðlilegt að það myndist einhver klíka eða náinn vinskapur hjá fólki sem vinnur saman í nefndum. KÞ hvatti nemendur til að leita til nefnda og stjórnar FG.
  • Er FG í Garðabæ?
    Skólinn er staðsettur í Garðabæ en er ekki hluti í skólakerfi Garðabæjar.

Nemendur fá orðið og segja frá hvað er næst á baugi í nefndum:

  • Næsta laugardag er Samtalið. Vettvangur fyrir fólk að koma saman og tala um hvernig samfélag við viljum skapa. Rakel hvatti öll til að skrá sig og taka þátt.
  • Á næstunni er FG vs. Flens, Salsaball, Jarmið og fleira og fleira.
  • Sagt frá hvernig hægt er að nálgast nemendakortið.
  • Skemmtinefndin stendur fyrir viðburði aðra hverja viku og framundan er skyrbarátta m.a.
  • Jarmið, 10.01 sem er undankeppni söngkeppninnar.
  • Góðgerðarvika í apríl.
  • Píluspjald á leiðinni.
  • Gettu betur liðið kynnt og Málfó.
  • Morfís, rökræðukeppni framhaldsskólanna hefst eftir áramótin.
  • FG bolurinn er væntanlegur á morgun, vonandi fyrir FG-Flens og nemendur hvattir til að mæta í þeim. Annars mæta í hvítu í stúkuna á föstudaginn.
  • Verðandi sagði frá haustsýningunni Sex í sveit. Nemendasýning verður 11.11.
  • Headshots auglýst þar sem ljósmyndari kemur og tekur myndir.
  • Leiktu betur verður 1.11 og undirbúningur í fullum gangi.
  • Prufur fyrir söngleikinn FAME verður um miðjan nóvember.
  • Petrún kynnti Hinseginfélagið í FG sem er nýstofnað. Haldnir verða vikulegir fundir og öll velkomin sem vilja starfa með félaginu. FG er skóli fjölbreytileikans.

Spurningar úr sal:

  • Spurt um nemendaskírteinin.
    Bent var á Instagram þar sem frekari upplýsingar eru.
  • Hvernig fer skráning fram fyrir Headshots.
    Bent á Instagram Verðandi leikfélags. Myndirnar verða teknar í næstu viku.
  • Hvenær er Fortnightmótið?
    Ef áhugi er á því þá verður það skipulagt.

Fundi slitið að loknum spurningum.

Fundargerð ritaði Kristín Helga Ólafsdóttir