4. fundur skólaráðs - haustönn 2026

4. fundargerð á haustönn 7. október kl. 11.10

  1. Umsóknir um leyfi

    Að þessu sinni lágu 11 leyfisbeiðnir fyrir fundinum. Afgreiðsla umsókna um leyfi verður send á netfang viðkomandi nemanda. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Leyfi felur í sér undanþágu frá tímasókn en ekki námi. Leyfi vegna keppnisferða, landsliðsverkefna og þátttöku í ungmennastarfi eru afgreiddar strax en umsóknir um önnur leyfi fá ekki endanlega afgreiðslu fyrr en í lok annar. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Samþykkt leyfisumsókna er háð því að skólasókn sé að minnsta kosti 97% fyrir utan þá 1-5 daga sem sótt er um leyfi fyrir.
  2. Önnur bréf

  • Nemandi sækir um að taka LÍFF2le05 í staðin fyrir LÍFF1gá05 til að undirbúa sig fyrir frekara nám. Samþykkt.
  • Nemandi sækir um undanþágu frá dönsku í samráði við námsráðgjafa. Nemandi var ekki í grunnskóla á Íslandi og hefur ekki lært dönsku. Samþykkt.
  1. Af vettvangi NFFG

  • Opinn fundur í morgun gekk vel. Þar voru nemendur í aðalhlutverki og kynntu dagskrá framundan. Forsvarsfólk nemendafélagsins sat fyrir svörum ásamt stjórnendum skólans.
  • FG- Flens verður á föstudaginn í Mýrinni. Þeir nemendur sem taka þátt fá leyfi eftir hádegi.
  • Salsaball verður 26. nóvember í Kolaportinu. Spurning um danskennslu og salsamat í þeirri viku
  • Busaballið gekk vel og mjög margir tóku þátt. Á það var uppselt og mjög góð stemming.
  • Skráning í skíðaferð gekk vel og nú hafa rúmlega 100 greitt staðfestingargjaldið.
  • Skólaþing verður í desember. KÞ kallar eftir hugmyndum frá nemendum um hvað þeir vilji að fjallað verði um. Fundarmenn á því að helga þennan fund að einhverju leyti umræðum um forvarnir. Rætt um hraðakstur, orkudrykki, áfengis- og vímuefnaneyslu og tóbaksnotkun.
  1. Önnur mál

  • Hilmar leggur fram gögn úr íslensku æskulýðsrannsókninni þar sem fram koma breytingar á líffstíl og líðan ungmenna við það skipta úr grunnskóla yfir í framhaldsskóla. Sjá hér fyrir neðan. Áhyggjuefni að líðan stúlkna versnar, íþróttaþátttaka minnkar og áfengisneysla eykst í meira mæli en hjá piltum. Nokkrar umræður í kjölfarið.

Fundinn sátu:

  • Anna María Gunnarssdóttir, aðstoðarskólameistari sem ritaði fundargerð
  • Auður Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
  • Guðmundur Stefán Gíslason, verkefnastjóri
  • Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
  • Kristín Helga Ólafsdóttir, áfangastjóri
  • Hilmar Þór Sigurjónsson, forvarnarfulltrúi
  • Kristín Logadóttir, kennari
  • Rakel Eva Kristmannsdóttir, forseti NFFG
  • Róbert Brink, fjármálastjóri NFFG
  • Rósa Siemsen, náms- og starfsráðgjafi
  • Tinna Ösp Arnardóttir, félagsmálafulltrúi