5. fundur skólaráðs - vorönn 2026
Skólaráð Fjölbrautaskólans í Garðabæ
5. fundargerð á vorönn 6. maí 2026
-
Umsóknir um leyfi
Að þessu sinni lágu 10 leyfisbeiðnir fyrir fundinum. Afgreiðsla umsókna um leyfi verður send á netfang viðkomandi nemanda. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Leyfi felur í sér undanþágu frá tímasókn en ekki námi. Leyfi vegna keppnisferða, landsliðsverkefna og þátttöku í ungmennastarfi eru afgreiddar um leið og staðfesting berst frá félagi/samtökum en umsóknir um önnur leyfi fá ekki endanlega afgreiðslu fyrr en í lok annar. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Samþykkt leyfisumsókna er háð því að skólasókn sé að minnsta kosti 97% fyrir utan þá 1-5 daga sem sótt er um leyfi fyrir.
-
Önnur bréf
-
- Einn nemandi óskar eftir að fá LÍFF2le05 metinn í stað LÍFF1gá05. Samþykkt.
- Einn nemandi óskar eftir að fá LÍFF2le05 metinn í stað LÍFF1gá05 og EFNA2ie05 eða Eðli2gá95 í stað jarðfræði eða umhverfisfræði. Samþykkt.
-
Af vettvangi NFFG
Nemendur spyrja um kaup á hljóðkerfi. Kristinn segir nauðsynlegt að hafa samráð við umsjónarmann húss og búnaðar.
Rætt um kosningar í ábyrgðarstöður NFFG og skilaboð fráfarandi stjórnar fyrir næsta vetur , m.a. undirbúning fyrir skíðaferð og árshátíð. Berglind kemur með ábendingar frá foreldrafélagi varðandi árshátíð. Rætt um opna stofu til að læra í síðustu vikur annarinnar. Tekið er vel í hugmyndina og nemendur ætla að koma með hugmynd að útfærslu til stjórnenda mjög fljótlega.
Einnig rætt um Gettu betur og Morfís og ákveðið að hugsa betur í haust hvernig æfingum verður háttað.
Fundinn sátu:
- Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari og fundarritari
- Auður Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
- Berglind M. Valdimarsdóttir, forvarnarfulltrúi
- Dagný Broddadóttir, náms- og starfsráðgjafi
- Guðmundur S. Gíslason, verkefnastjóri
- Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, forseti NFFG
- Hilmar Þór Sigurjónsson, kennari
- Ingvar Arnarson, áfangastjóri
- Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
- Magnús Emil Pétursson, fjármálastjóri NFFG
- Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir, kennari
- Tinna Ösp Arnardóttir, félagsmálafulltrúi