4. fundur skólaráðs - vorönn 2026

Skólaráð Fjölbrautaskólans í Garðabæ

4. fundargerð á vorönn 22. apríl 2026

  1. Umsóknir um leyfi

    Að þessu sinni lágu 25 leyfisbeiðnir fyrir fundinum. Afgreiðsla umsókna um leyfi verður send á netfang viðkomandi nemanda. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Leyfi felur í sér undanþágu frá tímasókn en ekki námi. Leyfi vegna keppnisferða, landsliðsverkefna og þátttöku í ungmennastarfi eru afgreiddar um leið og staðfesting berst frá félagi/samtökum en umsóknir um önnur leyfi fá ekki endanlega afgreiðslu fyrr en í lok annar. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Samþykkt leyfisumsókna er háð því að skólasókn sé að minnsta kosti 97% fyrir utan þá 1-5 daga sem sótt er um leyfi fyrir.
  2. Önnur bréf

    • Einn nemandi óskar eftir undanþágu frá dönsku. Samþykkt þar sem nemandi var með undanþágu í grunnskóla.
    • Einn nemandi óskar eftir að fá EÐLi2gá05 metinn í stað LÍFF1gá05 eða UMHV1au05. Sent til kennslustjóra raungreina til umsagnar. Samþykkt.
    • Nemandi óskar eftir undanþágu frá Stærðfræði. Hafnað
  1. Af vettvangi NFFG

    Rætt um góðgerðarviku og nemendur lögðu fram uppástungu að matseðli í mötuneyti nemenda. Málin rædd og ákveðið að bjóða þeim á fund með heilsunefnd skólans og ræða áfram á næsta skólaráðsfundi. Fundinum að öðru leyti frestað vegna áreksturs við annan viðburð.

Fundinn sátu:

  • Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari og fundarritari
  • Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, forseti NFFG
  • Magnús Emil Pétursson, fjármálastjóri NFFG
  • Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir, kennari
  • Eyþór Whelley, fulltrúi NFFG og gestur fundarins