Anna María Gunnarsdóttir aðstoðarskólameistari setti fund og bauð alla velkomna. Hún hrósaði nemendum fyrir ágætis námsárangur á miðönn og ræddi í stuttu máli um tengsl skólasóknar og námsárangurs. Hún benti nemendum á hversu mikilvægt það er að mæta vel.
Halla Stella, forseti NFFG, ásamt fleirum úr stjórn nemendafélagsins fóru yfir það sem er framundan í félagslífi nemenda:
- FG – Flens dagurinn er 2. mars , farið yfir keppnisgreinar. Rútur til Hafnarfjarðar og leyfi í tímum fyrir þá sem fara að hvetja.
- Árshátíð NFFG er 12. mars og verður samkvæmt venju stórglæsileg. Eftir dagskrá og þriggja rétta kvöldverð í Norðurljósasal Hörpu verður ball í Gamla bíói þar sem dansað verður fram eftir kvöldi. Kynnar kvöldsins verða Akrizz og Aron Mola. Þema kvöldsins er óskarsverlaunin.
- Gullmiði 15.990 kr. fyrir árshátíðina, ball og leikritið.
- Silfurmiði 5.500 kr. fyrir bara ballið í Gamla bíói.
- Morfískeppni við Borgarholtsskóla í mars.
- Góðgerðarvika 16. – 20. mars. Safnað verður fyrir minningarsjóð Bryndísar Klöru.
- Kosningar NFFG 4. – 8 maí, nemendur hvattir til að bjóða sig fram.
- Peysusala – fatnaður kemur í lok mars.
Anna María svaraði spurningum sem áður höfðu borist varðandi kjörsvið og veikindaskráningu. Einnig svaraði nemendafélagið tveimur spurningum varðandi góðgerðarviku.
Að lokum kynnti leikfélagið Verðandi leiksýninguna Ljóska í gegn og sýndu atriði við góðar undirtektir áhorfenda.
Fundi slitið að loknu atriði.
Fundargerð ritaði Ingvar Arnarson