2. fundur skólanefndar 2026-2027

haldinn fimmtudaginn 29. október 2026 kl. 11:45.

Mætt voru:

  • Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
  • Stefán Snær Stefánsson; formaður
  • Rakel Eva Kristmannsdóttir; forseti NFFG
  • Hulda Hlín Ragnars; fulltrúi í skólanefnd
  • Lilja Lind Pálsdóttir; fulltrúi í skólanefnd
  • Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari sem ritaði fundargerð.
    1. Staða fjármála eftir september 2026

      Fjárhagslega stendur skólinn vel miðað við árið í heild. Fjárhagsáætlun næsta árs verður lögð fyrir á næsta árs.
    2. Gestir fundarins

      • Fríða og Tinna sem fjölluðu um gervigreind í kennslu. Segja frá á að þær hafi m.a. prufað leiki, aðstoðarkennara, matskvarða og margt fleira. Þær nota gervigreind í öllum áföngum og hafa breytt kennsluháttum og námsmati mikið.
      • Guðmundur segir frá Erasmus+ samstarfi í FG við Noreg og SPán. Skiptist í K1 og K2 verkefni. Einnig hafa kennarar sótt námskeið á vegum Erasmus2 og við átt nemendaskipti við Ítalíu og Frakkaland. Hann segir umgjörðina stundum mjög flókna en að samstarfið sé mjög gjöfult. Þá segir hann að mikið sér sótt i samstarf við íslenska skóla. Kristinn bætir við að við höfum einnig verið í mjög löngu samstarfi við Hollandi.
      • Rakel Eva forseti NFFG segir frá félagslífi nemenda, hvað hefur verið gert í vetur og hvað er framundan. Skíðaferðin verður í janúar en þannig fara 106 nemendur. Boðið verður upp á skíðakennslu fyrsta daginn. Árshátíðin er enn í vinnslu.
    3. Önnur mál

      Stefán Már spyr frétta af fundi með Garðabæ. Kristinn segir fundinn hafa verið ánægjulegan og segja megi að meginniðurstaða þess fundar væri að skólann þyrfti að stækka.

 

Næsti fundur er áætlaður 3. desember.