5. fundur skólaráðs - vorönn 2025

5. fundargerð á vorönn 2025 miðvikudaginn 7. maí kl. 11:30

  1. Umsóknir um leyfi

    Að þessu sinni lágu 10 leyfisbeiðnir fyrir fundinum og var afgreiðsla þeirra hefðbundin.

    Afgreiðsla umsókna um leyfi verður send á netfang viðkomandi nemanda. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Leyfi vegna íþrótta og þátttöku í ungmennastarfi eru afgreiddar strax en umsóknir um önnur leyfi fá ekki endanlega afgreiðslu fyrr en í lok annar. Samþykkt leyfisumsókna er háð því að skólasókn sé að minnsta kosti 97% fyrir utan þá 1-5 daga sem sótt er um leyfi fyrir. Skólinn gefur ekki leyfi á námsmatsdögum.
  2. Af vettvangi NFFG

    • Kosningavika stendur yfir og mikið líf og fjör er í skólanum. Mikill áhugi er á að taka þátt í störfum nemendafélagsins og hafa 75 nemendur boðið sig fram. Kynninga- og áróðursefni verður tekinn niður í skólanum í dag og af samfélagsmiðlum fyrir miðnætti.
    • Kosningar byrja á fimmtudagsmorgni kl. 10.15. Kosið á Innu samkvæmt venju. Kosningavaka verður 9. maí.
    • NFFG stendur vel fjárhagslega og stjórn hefur áhuga á að skilja eitthvað eftir sig sem kemur nemendum skólans til góða. Þá hefur verið rætt um að kaupa grill, auglýsingaskjá eða hátalara.
  3. Önnur mál

    • Mikill áhugi var á aukakynningu á skólanum sem haldin var fyrir tilvonandi nýnema í gær þann 6. maí.
    • Síðasti fundur skólaráðs á þessu starfsári verður haldinn þann 21. maí nk.

Fundinn sátu:

  • Auður Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
  • Ásgeir Óli Egilsson, gjaldkeri NFFG
  • Berglind M, Valdimarsdóttir, forvarnarfulltrúi
  • Dagný Broddadóttir, náms- og starfsráðgjafi
  • Daníel Orri Árnason, varaforseti NFFG
  • Kolfinna Björt Þórðardóttir, forseti NFFG
  • Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
  • Sigríður Anna Ásbjörnsdóttir, kennari
  • Tinna Ösp Arnardóttir, félagsmálafulltrúi