2. fundur skólaráðs - vorönn 2026
Skólaráð Fjölbrautaskólans í Garðabæ
2. fundargerð á vorönn 18. mars 2026
-
Umsóknir um leyfi
Að þessu sinni lágu 25 leyfisbeiðnir fyrir fundinum. Afgreiðsla umsókna um leyfi verður send á netfang viðkomandi nemanda. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Leyfi felur í sér undanþágu frá tímasókn en ekki námi. Leyfi vegna keppnisferða, landsliðsverkefna og þátttöku í ungmennastarfi eru afgreiddar um leið og staðfesting berst frá félagi/samtökum en umsóknir um önnur leyfi fá ekki endanlega afgreiðslu fyrr en í lok annar. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Samþykkt leyfisumsókna er háð því að skólasókn sé að minnsta kosti 97% fyrir utan þá 1-5 daga sem sótt er um leyfi fyrir.
-
Önnur bréf
-
- Einn nemandi óskar eftir undanþágu frá íþróttum. Umsókn send til umsagnar kennslustjóra í íþróttadeild, Petrúnar
- Einn nemandi óskar eftir undanþágu frá stafsetningu. Umsókn send til umsagnar kennslustjóra í stærðfræði, Þórunnar.
-
Af vettvangi NFFG
Á döfinni er:
-
- Árshátíð: Árshátíð gekk samkvæmt áætlunum og NFFG lagði til u.þ.b. fjórar milljónar. Rætt um framkvæmd árshátíðarinnar sem tókst vel. Því miður komust færri að en vildu. Umræður um hvort mögulegt sé að fjölga miðum og hver skilaboð stjórnar NFFG í ár verði til nýrrar stjórnar varðandi árshátíð næsta ár.
- FG er komið í fjögurra liða úrslit fyrir Morfís og keppir við Kvennó eftir páska.
- Góðgerðarvika verður eftir páska.
- Kosningarvika verður fyrstu viku í maí.
- Söngkeppni 11. apríl í Háskólabíó.
-
Önnur mál
-
- Leiksýning nemdenda er sérlega fín í ár.
Fundinn sátu:
- Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari og fundarritari
- Auður Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
- Berglind M. Valdimarsdóttir, forvarnarfulltrúi
- Dagný Broddadóttir, náms- og starfsráðgjafi
- Guðmundur S. Gíslason, verkefnastjóri
- Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, forseti NFFG
- Hilmar Þór Sigurjónsson, fulltrúi kennara
- Ingvar Arnason, áfangastjóri
- Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
- Magnús Emil Pétursson, fjármálastjóri NFFG
- Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir, kennari
- Tinna Ösp Arnardóttir, félagsmálafulltrúi