Fundur foreldraráðs 10. september 2026

Fundarherbergi FG – fimmtudaginn 10. september 2026

Mætt:

  • Björg
  • María
  • Elva
  • Þórunn
  • Atli
  • Alma
  • Tinna (félagsmálafulltrúi)
  • Hilmar (forvarnarfulltrúi)

Fundarritari:

Hilmar Þór Sigurjónsson

Dagskrá fundar:

  1. Kynning

    Meðlimir kynna sig. Allir meðlimir foreldraráðs eru foreldrar nýnema í ár.
  2. Tinna Ösp Arnardóttir félagsmálafulltrúi segir frá félagslífi nemenda

    Félagsmálafulltrúi nemendanna frá 2011.

    Vinnur á skólaböllunum ásamt einum þremur öðrum starfsmönnum frá skólanum,

    FG skólaböllin hafa að jafnaði farið vel fram.

    Tengiliður FG við nemendafélagið, fundar með þeim vikulega. Er nemendum til halds og traust. Það eru margar nefndir í gangi, félagsmálafulltrúi hvetur nemendur til að nýta skólann fyrir ólíka viðburði, hvetur þau þó einnig til að taka flestar ákvarðanir sjálf varðandi félagslífið sitt.

    Nemendur hafa t.d. verið með vökukvöld, Bingó, ýmiss skemmtikvöld, söngkeppni, íþróttaviku, Gettu Betur, Morfís, Open Mic, FG-Flensborg daginn o.fl.

    Nemendafélagið fær vissa upphæð á önn til að fjármagna félagslífið.

    Tinna upplýsir um að það hafi verið mikil aðsókn í að vera nýnemafulltrúi í hinum ólíku nefndum í ár.
  3. Kosningar

    Atli bauð sig fram sem formaður.
    Þórunn bauð sig fram sem varaformaður.
    Alma bauð sig fram sem ritari.
    Sigrún Jósefs fjármálastjóri verður gjaldkeri.
    Enn er eftir að ganga frá kjöri í skólanefnd.
  4. Á döfinni (fulltrúar á nýnemaball 17. september)

    Gert er ráð fyrir 2-3 foreldrum á hvert ball. Á fyrsta ball, nýnemaballið, verða Atli, Björg og Alma viðstödd fyrir hönd foreldraráðs. Næsta ball verður svo 3. desember.
  5. Samskiptamátar foreldraráðs

    Formanni falið að mynda facebook hóp sem hann svo sendir á aðra meðlimi ráðsins.
  6. Sjóður foreldraráðs og aðbúnaður nemenda

    Staða sjóðsins er 404.275 krónur.

    Á fundinum í apríl var samþykkt að kaupa áhöld og búnað til afþreyingar fyrir nemendur í skólanum; borðtennis spaða og bolta, spikeball, pógó, píluspjald. Forvarnarfulltrúi mun annast kaupin en listi verður lagður fyrir foreldraráð áður en gengið verður frá kaupum.
  7. Önnur mál´

    Salsa kennsla í vikunni fyrir salsa ballið. Foreldraráðið er tilbúið til að greiða fyrir.
    Athugað verður með að mögulega spila tónlist í matsalnum í hádeginu.
    Hvetja til stofnunar skíða- og brettanefndar í skólanum.
  • Senda á foreldra nýnema hvað megi taka með á ballið (ekki gloss oþh)
  • Komast að því hvenær er rukkað í foreldrafélagið
  • Fá yfirlitið frá Sigrúnu yfir útgjöld og senda út á ráðið
  • Senda þeim dagatalið frá NFFG